FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 03. NÓVEMBER 2011


Gistinóttum fjölgar um 20%   
Gistinætur á hótelum í september síðastliðnum voru 136.400 samanborið við 113.900 í september 2010. Gistinætur erlendra gesta voru um 80% af heildarfjölda gistinátta á hótelum í september og fjölgaði gistinóttum þeirra um 22% frá fyrra ári. Gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 11% samanborið við september 2010.

Gistinóttum á hótelum í september fjölgaði á öllum landssvæðum samanborið við september 2010. Á Austurlandi voru 5.200 gistinætur í september og fjölgaði gistinóttum um 38% milli ára. Á höfðuborgarsvæðinu voru gistinætur 97.700 í september sem er 25% aukning frá fyrra ári. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða voru gistinætur 4.600 sem er 10% aukning samanborið við september 2010. Á Suðurlandi og á Suðurnesjum fjölgaði gistinóttum um 7% samanborið við september 2010, voru 12.600 á Suðurlandi og 5.800 á Suðurnesjum. Á Norðurlandi voru  10.600 gistinætur í september sem eru um 3% aukning frá fyrra ári.



Gistinóttum á hótelum fyrstu níu mánuði ársins fjölgaði um rúm 13% milli ára
Gistinætur fyrstu níu mánuði ársins voru 1.222.500 en voru 1.079.800 á sama tímabili árið 2010. Gistinóttum hefur fjölgað milli ára á Suðurnesjum um 18%, á höfuðborgarsvæðinu um 16% og á Austurlandi um 7%. Á Norðurlandi, Suðurlandi og á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða hefur gistinóttum fjölgað um 6% á milli ára. 

Á  Fyrstu níu mánuðum ársins hefur gistinóttum erlendra gesta fjölgað um 12% og gistinóttum Íslendinga um 19% samanborið við fyrra ár.


Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.