FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 05. APRÍL 2016

Seldar gistinætur voru 6,5 milljónir hér á landi árið 2015 og fjölgaði um 19% frá fyrra ári. Gistinætur erlendra ferðamanna voru 86% af heildarfjölda gistinátta og fjölgaði um 27% frá fyrra ári. Gistinóttum Íslendinga fækkaði um 14%. Gisti­næt­ur á hótelum og gistiheimilum voru 63% allra gistinátta, 13% gistinátta voru á tjald­svæð­um og 24% á öðrum tegundum gististaða. Gistinótt­um fjölgaði í öllum landshlutum á milli ára. Sem fyrr voru flestar gistinætur á höfuðborgar­svæð­inu en hlutfallslega fjölgaði gistinóttum þó mest á Vesturlandi og Suður­nesjum.

Mikil aukning hefur orðið á seldum gistinóttum undanfarin ár. Þannig hefur heildarfjöldi gistinátta aukist um 3,3 milljónir eða ríflega tvöfaldast frá árinu 2011. Á þessum tíma hefur gistinóttum erlendra ríkisborgara fjölgað um 129,3% en gistinóttum Íslendinga hefur fjölgað um 15,6%.

Samhliða fjölgun gistinátta hefur framboð gistirýmis vaxið mikið á undan­förnum árum. Gistináttatölur fyrir árið 2015 ná yfir 1189 gististaði. Mikil umræða hefur verið um aðila sem selja gistingu um vef Airbnb. Flestir stærri gististaðir á Airbnb eru meðtaldir í gögnum Hagstofunnar en ljóst er að töluvert vantar upp á fjölda smærri gististaða með 2 eða færri herbergi.

Gistinætur á öllum tegundum gististaða 2011-2015          
  2011 2012 2013 2014 2015
           
Alls 3.248.960 3.751.513 4.546.383 5.489.986 6.536.352
Íslendingar  804.715 853.502 1.024.559 1.085.049 930.653
Útlendingar   2.444.245 2.898.011 3.521.824 4.404.937 5.605.699

Gistingar ferðamanna 2015 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.