FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 06. NÓVEMBER 2014

Gistinætur á hótelum í september voru 199.300 sem er 19% aukning miðað við september 2013. Gistinætur erlendra gesta voru 83% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 26% frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fækkaði um 5%. Yfir tólf mánaða tímabil hefur fjöldi gistinátta aukist um 14%.

Flestar gistinætur voru á höfuðborgarsvæðinu um 125.100 sem er 15% aukning miðað við september 2013. Næst flestar voru gistinætur á Suðurlandi eða um 27.600 og hefur gistinóttum á Suðurlandi fjölgað um 29% samanborið við september 2013. Erlendir gestir með flestar gistinætur í september voru; Bandaríkjamenn með rúmlega 37.700, Bretar 21.300 og Þjóðverjar með rúmlega 19.000 gistinætur.

Nýting herbergja á hótelum í september 2014
Nýting herbergja í september var best á höfuðborgarsvæðinu eða tæplega 85%. Á Suðurnesjum var 60% nýting á herbergjum.   

Gistinætur á hótelum
  September   Október - September    
  2013 2014 % 2012-2013 2013-2014 %
Alls 167.097 199.297 19 1.975.828 2.246.836 14
Höfuðborgarsvæði 108.649 125.071 15 1.335.015 1.508.177 13
Suðurnes 6.941 9.273 34 86.695 105.586 22
Vesturland og Vestfirðir 7.500 11.556 54 83.742 98.265 17
Norðurland 15.185 18.380 21 159.144 168.258 6
Austurland 7.423 7.452 0 87.329 81.252 -7
Suðurland 21.399 27.565 29 223.903 285.298 27
Íslendingar 35.286 33.476 -5 332.110 343.245 3
Erlendir gestir 131.811 165.821 26 1.643.718 1.903.591 16

 

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.