FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 09. JANÚAR 2014

Gistinætur á hótelum í nóvember voru 138.800 sem er 20% aukning miðað við nóvember 2012. Gistinætur erlendra gesta voru 78% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 25% frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 6%.

Á höfuðborgarsvæðinu voru 110.200 gistinætur á hótelum í nóvember sem er fjölgun um 21% miðað við nóvember  2012. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða voru 3.500 gistinætur sem er fjölgun um 52% miðað við sama tímabil 2012. Á Suðurlandi voru  gistinætur 11.000 í nóvember sem er aukning um 40% frá fyrra ári. Á Austurlandi voru gistinætur 2.600 sem er 37% aukning samanborið við nóvember 2012. Á Suðurnesjum voru 5.500 gistinætur í nóvember sem er aukning um 12% frá fyrra ári. Gistinóttum fækkaði á Norðurlandi í nóvember og voru um 6.000 miðað við 7.300 árið áður. 

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 13% á fyrstu ellefu mánuðum ársins
Gistinætur á hótelum fyrstu ellefu mánuði ársins 2013 voru 1.929.757 til samanburðar við 1.705.137 fyrir sama tímabil árið 2012. Ef miðað er við sama tímabil árið 2012 þá hefur gistinóttum erlendra gesta hefur fjölgað um 14% á meðan gistinóttum Íslendinga hefur fjölgað um 11%.

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.