FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 04. OKTÓBER 2012

Gistinætur á hótelum í ágúst voru 239.500 samanborið við 218.500 í ágúst 2011. Gistinætur erlendra gesta voru um 89% af heildarfjölda gistinátta í ágúst en gistinóttum þeirra fjölgaði um 11% samanborið við ágúst 2011. Á sama tíma voru gistinætur Íslendinga 3% færri en árið áður.

Gistinóttum á hótelum fjölgaði í öllum landshlutum nema á Suðurnesjum. Á höfuðborgarsvæðinu voru gistinætur 149.000 eða um 12% fleiri en í ágúst 2011. Á Suðurlandi voru 33.500 gistinætur á hótelum í ágúst sem er um 11% aukning samanborið við fyrra ár. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða fjölgaði gistinóttum um 8% en þar var fjöldi gistinátta 10.000. Á Norðurlandi fjölgaði gistinóttum um 7%, voru 23.700 samanborið við 25.400 í ágúst 2011. Gistinætur á Austurlandi voru 11.700 í ágúst og fjölgaði um 5%. Gistinóttum á Suðurnesjum fækkaði milli ára um 7% voru 9.900 samanborið við 10.600 í ágúst 2011.

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 17% fyrstu átta mánuði ársins
Gistinætur á hótelum fyrstu átta mánuði ársins 2012 voru 1.265.800 en voru 1.085.500 fyrir sama tímabil árið 2011. Á þessu tímabili hefur gistinóttum erlendra gesta fjölgað um 18% á meðan gistinóttum Íslendinga hefur fjölgað um 9%.


Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.