FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 04. MAÍ 2012

Gistinætur á hótelum í mars voru 134.000 samanborið við 97.300 í mars 2011. Gistinætur erlendra gesta voru um 77% af heildarfjölda gistinátta í mars en gistinóttum þeirra fjölgaði um 45% samanborið við mars 2011. Á sama tíma fjölgaði gistinóttum Íslendinga um ríflega 17%.

Gistinóttum á hótelum fjölgaði í öllum landshlutum, á höfuðborgarsvæðinu voru ríflega 104.300 gistinætur í mars sem er fjölgun um tæp 40% frá fyrra ári. Gistinætur á Suðurlandi voru 13.100 og fjölgaði um 42%. Á Norðurlandi voru tæplega 6.400 gistinætur á hótelum í mars sem er um 25% aukning samanborið við mars 2011. Gistinætur á Suðurnesjum voru um 5.100 sem jafngildir ríflega 15% aukningu frá fyrra ári. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða voru gistinætur á hótelum 3.100 í mars og fjölgaði um 61%. Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum um 5%, voru 2.050 samanborið við 1.950 í mars 2011.

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um tæp 34% á fyrsta ársfjórðungi
Gistinætur á hótelum í janúar, febrúar og mars samanlögðum voru 309.300 en voru 230.800 fyrir sama tímabil árið 2011. Gistinóttum erlendra gesta hefur fjölgað um 39% samanborið við fyrsta ársfjórðung árið 2011 á meðan gistinóttum Íslendinga hefur fjölgað um 18%.


Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið.  Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann. 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.