FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 09. JANÚAR 2013

Gistinætur á hótelum í nóvember voru 115.200 samanborið við 77.600 í nóvember 2011. Gistinætur erlendra gesta voru um 75% af heildarfjölda gistinátta í nóvember en gistinóttum þeirra fjölgaði um 54% samanborið við nóvember 2011. Á sama tíma voru gistinætur Íslendinga 33% fleiri en árið áður.

Gistinóttum á hótelum fjölgaði í öllum landshlutum nema á Austurlandi. Á höfuðborgarsvæðinu voru gistinætur  91.300 eða um 52% fleiri en í nóvember 2011. Á Norðurlandi fjölgaði gistinóttum um 120%, voru 7.300 samanborið við 3.300 í nóvember 2011. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða fjölgaði gistinóttum um 43% en þar var fjöldi gistinátta í nóvember 2.100. Á Suðurlandi voru 7.700 gistinætur á hótelum í nóvember sem er um 17% aukning samanborið við fyrra ár. Gistinóttum á Suðurnesjum fjölgaði á milli ára um 16%, voru 4.900 samanborið við 4.200 í nóvember 2011. Gistinætur á Austurlandi voru 1.900 í nóvember og fækkaði um 4% á milli ára.

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 20% á fyrstu ellefu mánuðum ársins
Gistinætur á hótelum fyrstu ellefu mánuði ársins voru 1.696.300 til samanburðar við 1.416.700 á sama tímabili árið 2011. Gistinóttum erlendra gesta hefur fjölgað um 21% en gistinóttum Íslendinga hefur fjölgað um 12%.


Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.