FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 03. FEBRÚAR 2012

Gistinætur á hótelum í desember voru 69.200 samanborið við 54.300 í desember 2010. Gistinætur erlendra gesta voru um 76% af heildarfjölda gistinátta í desember en gistinóttum þeirra fjölgaði um 37% samanborið við desember 2010. Á sama tíma fjölgaði gistinóttum Íslendinga um 4%.

Gistinætur á hótelum á höfuðborgarsvæðinu voru 57.000 í desember og fjölgaði um 27% frá fyrra ári. Á Austurlandi voru gistinætur 750 í desember og fjölgaði um 29%. Á Suðurlandi voru gistinætur 5.500 eða 24% fleiri en í desember 2010. Á Norðurlandi voru 2.200 gistinætur í desember sem er um 10% aukning frá fyrra ári. Á Suðurnesjum voru gistinætur svipaðar milli ára eða um 3.000. Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða fækkaði hinsvegar gistinóttum milli ára, voru 800 samanborið við 700 í desember 2010.

Gistinóttum fjölgar um tæp 14% milli ára
Gistinætur á hótelum voru samtals 1.488.400 árið 2011 samanborið við 1.309.700 árið 2010. Gistinóttum fjölgaði frá árinu 2010 um 17% á höfuðborgarsvæðinu, 16% á Suðurnesjum, 9% á Austurlandi, 6% á Norðurlandi og um 3% á Suðurlandi sem og samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða.

Á árinu 2011 fjölgaði gistinóttum erlendra hótelgesta um 15% og gistinóttum Íslendinga um 10% samanborið við fyrra ár.

Athygli skal vakin á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.