FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 05. MAÍ 2004

Út er komið ritið Gistiskýrslur 2003 þar sem birtar eru niðurstöður úr gistináttatalningu Hagstofu Íslands fyrir árið 2003.
       Þar kemur fram að heildarfjöldi gistinátta var 1.984.448 árið 2003 sem er 6,7% aukning frá árinu 2002.  Gistinóttum fjölgaði milli áranna 2002 og 2003 á hótelum og gistiheimilum (8,6%), svefnpokagististöðum (25,4%), skálum í óbyggðum (10,7%), farfuglaheimilum (7,5%) og í orlofshúsabyggðum (0,5%). Gistinóttum fækkaði á heimagististöðum (-3,5%) og á tjaldsvæðum (-0,1%).
       Heimtur gistiskýrslna árið 2003 voru góðar og voru til að mynda yfir 93% á hótelum og gistiheimilum alla mánuði ársins. 
       Í heftinu eru niðurstöður talningarinnar birtar í töflum, myndum og yfirlitum en mun ítarlegra talnaefni er að finna á heimasíðu Hagstofunnar.

Gistiskýrslur 2003 - útgáfur

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.