Út er komið ritið Gistiskýrslur 2004 þar sem birtar eru niðurstöður úr gistináttatalningu Hagstofu Íslands fyrir árið 2004.
Þar kemur fram að heildarfjöldi gistinátta var 2.133.630 árið 2004 sem er 7,5% aukning frá árinu 2003. Gistinóttum fjölgaði frá árinu 2003 á hótelum og gistiheimilum (7,3%), heimagististöðum (17,9%), svefnpokagististöðum (12,2%), á tjaldsvæðum (10,6%) og á farfuglaheimilum (6,9%). Gistinóttum fækkaði hins vegar í orlofshúsabyggðum (-3,6%) og í skálum í óbyggðum (-2,1%).
Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum. Aukningin var hlutfallslega mest aukningin á Suðurnesjum (17,5%), Norðurlandi vestra (15,9%) og á Vesturlandi (11,1%). Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum um 7,8%, á Norðurlandi eystra um 7,3% og á Suðurlandi um 5,5%. Á Austurlandi nam fjölgunin 4,1% og á Vestfjörðum 4,0%.
Í heftinu eru niðurstöður talningarinnar birtar í töflum, myndum og yfirlitum.
Gistiskýrslur 2004 - útgáfur
Talnaefni