Heildarfjöldi gistinátta dróst saman um 3% í september
Heildarfjöldi greiddra gistinátta í september dróst saman um 3,3% milli 2018 og 2019 og kom sú fækkun helst fram í gistinóttum sem miðlað var gegnum Airbnb og svipaðar síður, þar sem fækkunin var 5,8%. Gistinóttum á hótelum og gistiheimilum fækkaði um 2,5% en gistinóttum á öðrum tegundum gististaða (tjaldsvæðum, farfuglaheimilum, íbúðagistingu o.s.frv.) fækkaði um 3,8%.

Greiddar gistinætur ferðamanna á öllum gististöðum voru um 1.012.500 í september síðastliðnum, en þær voru um 1.047.500 í sama mánuði í fyrra. Gistinætur á hótelum og gistiheimilum voru 591.600, þar af 424.100 á hótelum og 167.500 á gistiheimilum. Gistinætur í íbúðagistingu, farfuglaheimilum, tjaldsvæðum o.þ.h. voru um 240.900 og um 180.000 í gegnum vefsíður á borð við Airbnb.

Gistinóttum á hótelum fækkaði um 2%
Gistinætur á hótelum í september síðastliðnum voru 424.100, sem er 2% samdráttur frá sama mánuði árið áður. Samdrátturinn var 2% á höfuðborgarsvæðinu og 12% á Vesturlandi og Vestfjörðum. Aukning var á Suðurnesjum um 6% og 1% á Austurlandi, en á Norðurlandi og Suðurlandi stóðu gistinætur í stað. Um 51% allra hótelgistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu, eða 215.000.

Gistinætur á hótelum
  September   Október-september  
  2018 2019 % 2017-2018 2018-2019 %
Alls431.415424.066-24.438.9374.401.177-1
Höfuðborgarsvæði220.201215.005-22.609.6282.498.745-4
Suðurnes31.67233.4776307.772311.1351
Vesturland og Vestfirðir33.47629.481-12235.311242.4333
Norðurland39.83939.7330307.476339.22110
Austurland15.42115.5251101.364112.65011
Suðurland90.80690.8450877.386896.9932
Þjóðerni
Íslendingar35.30336.7654457.230420.925-8
Erlendir gestir396.112387.301-23.981.7073.980.2520

Á tólf mánaða tímabili, frá október 2018 til september 2019, var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 4.401.200, sem er 1% samdráttur miðað við sama tímabil árið áður.

Um 91% gistinátta á hótelum voru skráðar á erlenda ferðamenn, eða 387.300 sem er 2% samdráttur frá september 2018. Bandaríkjamenn voru með flestar gistinætur (135.500), þar á eftir komu Þjóðverjar (34.600) og Kínverjar (31.600) en gistinætur Íslendinga voru 36.800.

Herbergjanýting í september 2019 var 74,0%, sem er lækkun um 4,1 prósentustig frá september 2018. Á sama tíma hefur framboð gistirýmis aukist um 6,2% mælt í fjölda herbergja. Nýtingin í september var best á Suðurnesjum, eða 80,7%.

Framboð og nýting hótelherbergja í september
  Herbergjafjöldi á hótelum í september Herbergjanýting hótela í september
2018 2019 % 2018 2019 prst
Alls10.35010.9916,2%78,1%74,0%-4,1
Höfuðborgarsvæði5.1385.3393,9%81,9%79,1%-2,8
Suðurnes62775520,4%90,0%80,7%-9,3
Vesturland og Vestfirðir80792314,4%76,5%60,4%-16,1
Norðurland1.1281.2167,8%68,3%63,5%-4,8
Austurland4414410,0%64,2%64,2%0,0
Suðurland2.2092.3174,9%74,3%72,8%-1,5

Samkvæmt áætlun sem byggir á svörum úr Landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands voru gistinætur erlendra ferðamanna í bílum utan tjaldsvæða um 17.000 og gistinætur hjá vinum og ættingjum, í gegnum húsaskipti eða annars staðar þar sem ekki var greitt sérstaklega fyrir gistingu, voru um 31.000.

Lýsigögn
Gistináttatölur fyrir hótel koma úr gistináttagrunni Hagstofu Íslands. Áætlun á gistinóttum utan hefðbundinnar gistináttatalningar byggist á niðurstöðum úr Landamærarannsókn Ferðamálastofu og Hagstofu Íslands meðal erlendra ferðamanna sem framkvæmd er í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Einnig er byggt á gögnum úr gistináttagrunni Hagstofunnar, að teknu tilliti til upplýsinga um virðisaukaskattskylda veltu frá Airbnb og bílaleigum sem leggja áherslu á útleigu viðverubúinna húsbíla. Þær aðferðir sem beitt er við áðurnefnda áætlun eru í þróun innan Hagstofu Íslands. Tölur sem birtar eru um ógreiddar gistinætur og gistinætur, sem miðlað er gegnum vefsíður eru því bráðabirgðatölur og geta tekið breytingum með hliðsjón af bættum upplýsingum og aðferðum. Við landsvæðaskiptingu þessara talna er stuðst við vefskröpun og gögn úr gistináttagrunni Hagstofunnar. Frekari lýsigögn um fjölda gististaða, gesta og gistinátta má nálgast á vef Hagstofunnar.

Allar tölur fyrir 2019 eru bráðabirgðatölur.

Talnaefni