FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 15. ÁGÚST 2024

Fjöldi starfandi í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi voru 31.019 í júní 2024 sem er 2% færri en voru í júní 2023 þegar fjöldinn var 31.580. Á tólf mánaða tímabili frá júlí 2023 til júní 2024 störfuðu að jafnaði um 29.336 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við 27.847 fyrir sama tímabil frá árinu áður.

Gistinætur á hótelum í júní 2024 voru 479.462 samanborið við 510.039 í júní 2023. Gistinætur erlendra gesta voru 381.866 í júní eða 8% færri en á sama tíma árið áður. Gistinætur Íslendinga voru 97.596, 5% fleiri en í júní 2023. Frekari upplýsingar um gistinætur er að finna á vef Hagstofunnar undir flokknum Ferðaþjónusta.

Í júlí voru 339.603 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 345.917 í júlí 2023. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 276.623 samanborið við 275.885 í júlí 2023 sem er nánast sami fjöldi farþega.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um gistinætur, fjölda starfandi skv. skrám, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.








Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónustu
Farþegar um Keflavíkurflugvöll
Meðal dagleg umferð á stofnvegum eftir mánuðum

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.