FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 21. ÁGÚST 2025

Fjöldi starfandi í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi voru 34.168 í júní 2025 sem er svipaður fjöldi og voru í júní 2024 þegar fjöldinn var 34.056. Á tólf mánaða tímabili frá júlí 2024 til júní 2025 störfuðu að jafnaði um 31.462 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við 31.660 fyrir sama tímabil frá árinu áður.

Gistinætur á hótelum í júní 2025 voru 533.608 samanborið við 487.649 í júní 2024. Frekari upplýsingar um gistinætur er að finna á vef Hagstofunnar undir flokknum Ferðaþjónusta.

Í júlí voru 368.643 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 339.603 í júlí 2024. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 301.824 samanborið við 276.621 í júlí 2024.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um gistinætur, fjölda starfandi skv. skrám, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.








Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.