FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 20. APRÍL 2022

Tekjur af erlendum ferðamönnum á fjórða ársfjórðungi 2021 námu tæpum 59 milljörðum króna samanborið við 8,2 milljörðum miðað við sama tímabil árið áður. Á tólf mánaða tímabili frá janúar 2021 til desember 2021 voru tekjur af erlendum ferðamönnum tæplega 204 milljarðar króna samanborið við 113 milljarða fyrir sama tímabil frá árinu áður.

Áætlaðar gistinætur á hótelum í mars eru 307 þúsund sem er 518% aukning borið saman við mars 2021 þegar gistinætur á hótelum voru 49.653. Gistinætur Íslendinga eru áætlaðar 73.000 í mars, eða 80% fleiri en í mars 2021, og gistinætur erlendra gesta eru áætlaðar 234.000 samanborið við 9.110 á síðasta ári.

Í mars voru 135.364 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 7.729 í mars 2021. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 101.173 samanborið við 4.601 í mars í fyrra.















Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um gistinætur, þjónustuviðskipti við útlönd , skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.

Tafla á pdf

Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónsutu
Farþegar

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.