FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 19. APRÍL 2023

Gistinætur á hótelum í febrúar 2023 voru um 372 þúsund samanborið við um það bil 271 þúsund í febrúar árið á undan. Gistinætur Íslendinga voru 66.993 í febrúar, eða 8% fleiri en í febrúar 2022, og gistinætur erlendra gesta voru 304.886 en voru 208.582 í febrúar í fyrra eða 46% fleiri en árinu áður.

Fjöldi starfandi einstaklinga í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi voru 27.846 í febrúar 2023 sem er 20% aukning samanborið við febrúar 2022. Á tólf mánaða tímabili frá mars 2022 til febrúar 2023 störfuðu að jafnaði um 29.518 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við 22.202 fyrir sama tímabil árið áður.

Í mars voru 200.693 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli samanboriðí samanburði við 135.364 í mars 2022. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 160.916 samanborið við 101.173 í mars í fyrra.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um gistinætur, fjölda starfandi skv. skrám, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.








Tafla á pdf

Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónustu
Farþegar um Keflavíkurflugvöll
Meðal dagleg umferð á stofnvegum eftir mánuðum

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.