FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 18. APRÍL 2024

Fjöldi starfandi í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi voru 28.451 í febrúar 2024 sem er 3% aukning samanborið við febrúar 2023. Á tólf mánaða tímabili frá mars 2023 til febrúar 2024 störfuðu að jafnaði um 31.584 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við 28.920 fyrir sama tímabil frá árinu áður.

Gistinætur á hótelum í febrúar 2024 voru 372.687 samanborið við 371.677 í febrúar 2023. Gistinætur erlendra gesta voru 304.970 í febrúar eða sami fjöldi og á sama tíma árið áður. Gistinætur Íslendinga voru 67.718, 1% fleiri en í febrúar 2023.

Í mars voru 229.997 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 200.693 í mars 2023. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 173.295 samanborið við 160.916 í mars árið á undan.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um gistinætur, fjölda starfandi skv. skrám, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.








Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónustu
Farþegar um Keflavíkurflugvöll
Meðal dagleg umferð á stofnvegum eftir mánuðum

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.