FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 16. DESEMBER 2021

Tekjur af erlendum ferðamönnum á þriðja ársfjórðungi 2021 námu 107 milljörðum króna samanborið við 32,8 milljarða á sama tímabili árið á undan. Á tólf mánaða tímabili frá október 2020 til september 2021 voru tekjur af erlendum ferðamönnum 153 milljarðar króna samanborið við 193 milljarða á tólf mánaða tímabili árinu áður.

Áætlaðar gistinætur á hótelum í nóvember voru um 251 þúsund sem er næstum því tíföld aukning borið saman við nóvember 2020 þegar gistinætur á hótelum voru 23.656. Gistinætur Íslendinga eru áætlaðar 53.200 í nóvember, eða 226% fleiri en í nóvember 2020, og gistinætur erlendra gesta eru áætlaðar 198.600 samanborið við 7.342 á síðasta ári.

Fjöldi starfandi samkvæmt skrám í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi voru um 21.109 í september 2021 sem er fjölgun um 34% samanborið við september í fyrra. Á tólf mánaða tímabili frá október 2020 til september 2021 störfuðu að jafnaði um 15.425 í einkennandi greinum ferðaþjónustu í samanburði við ríflega 20 þúsund fyrir sama tímabil í fyrra.

Í nóvember voru 109.189 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 5.356 í nóvember 2020. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 75.460 samanborið við 3.256 í nóvember í fyrra.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um gistinætur, þjónustuviðskipti við útlönd, fjölda starfandi skv. skrám, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.

Skammtímahagvísar ferðaþjónustu desember 2021 Október  Nóvember - október  
Gistinætur 2020 2021   2019-2020 2020-2021  
Gistinætur alls184.162550.747554%4.118.4524.529.622 10%
Hótel & gistiheimili53.546423.585691%2.702.6932.809.640 4%
Aðrar tegundir skráðra gististaða230.616127.162315%1.415.7591.719.982 21%
  Október  Nóvember - október  
Framboð og nýting hótelherbergja 2020 2021 % 2019-2020 2020-2021  
Gistinætur á hótelum38.778360.281829%2.080.1102.052.039 -1%
Framboð hótelherbergja7.55110.88644%....  
Nýting11%62%51%35,8%39,1% 3
  Nóvember  Desember - nóvember  
Tilraunatölfræði - Gistinætur á hótelum 2020 2021 (áætla   2019-2020 2020-2021  
Gistinætur á hótelum23.656251.800964%1.774.0162.280.183 29%
– Íslendingar16.31453.200226%551.303788.082 43%
– Útlendingar7.342198.6002605%1.222.7131.492.101 22%
  3. ársfjórðungur  4. ársfjórðungur - 3. ársfjórðungs  
Þjónustuviðskipti við útlönd (milljónir króna) 2020 2021 % 2019-2020 2020-2021 %
Tekjur af erlendum ferðamönnum32.846106.961226%193.124153.210 -21%
– Farþegaflutningar með flugi4.35119.022337%51.36026.177 -49%
– Neysla / Ferðalög28.49587.939209%141.764127.033 -10%
  Júlí - ágúst  September - ágúst  
Velta samkvæmt virðisaukaskattskýrslum3 (m. króna) 2020 2021   2019-2020 2020-2021  
Einkennandi greinar ferðaþjónustu á Íslandi58.869109.14885%403.375287.882 -29%
– Farþegaflutningar með flugi17.15928.73667%143.98489.126 -38%
– Þjónustustarfsemi tengd flutningum með flugi7303.316354%10.8977.384 -32%
– Rekstur gististaða10.23821.836113%58.41342.347 -28%
– Veitingasala og -þjónusta14.80819.62233%77.70073.541 -5%
– Leiga á tómstunda-, íþróttavörum og vélknúnum ökutækjum8.73512.51243%39.28434.839 -11%
– Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (erlendis)2101.264501%8.2142.389 -71%
– Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (á Íslandi)4.05213.923244%38.37224.097 -37%
– Nuddstofur, sólbaðsstofur, gufuböð o.þ.h.1.4083.366139%11.9155.977 -50%
– Farþegaflutningar á landi8252.986262%12.1005.792 -52%
– Farþegaflutningar á sjó, vötnum og ám7041.588126%2.4962.390 -4%
  September  Meðalfjöldi október - september  
Fjöldi starfandi skv. skrám 2020 2021   2019 - 2020 2020 - 2021  
Einkennandi greinar ferðaþjónustu15.80621.10834%20.27615.425 -24%
– Flutningar með flugi2.7393.07112%3.8792.389 -38%
– Rekstur gististaða3.6625.82959%5.3393.567 -33%
– Veitingasala og -þjónusta8.0139.81222%8.7818.026 -9%
– Ferðaskrifstofur, -skipuleggjendur ogbókunarþjónusta1.3922.39672%2.2771.443 -37%
  Desember  Meðalfjöldi janúar - desember  
Bílaleigubílar4 2020 2021   2019-2020 2020-2021  
Bílaleigubílar alls18.21119.4487%20.84518.293 -12%
Bílaleigubílar í umferð13.09817.67035%16.62715.702 -6%
Bílaleigubílar úr umferð5.1131.778-65%4.2182.591 -39%
  Nóvember  Desember - nóvember  
Umferð á hringveginum5 2020 2021   2019-2020 2020-2021  
Suðurland8.26411.78043%140.136161.454 15%
Vesturland8.26211.01333%144.256165.414 15%
Norðurland3.6175.22745%77.71895.498 23%
Austurland1.0521.39433%19.35624.956 29%
  Nóvember  Desember - nóvember  
Talning farþegar úr landi6 2020 2021   2019-2020 2020-2021  
Farþegar í gegnum Keflavíkurflugvöll5.169109.1892012%765.896821.275 7%
– Erlent ríkisfang3.25675.4602218%595.795631.619 6%
– Íslenskt ríkisfang1.91333.7291663%170.101189.656 11%
  Nóvember  Desember - nóvember  
Umferð í gegnum Keflavíkurflugvöll7 2020 2021  2019-2020 2020-2021  
Heildarfjöldi flughreyfinga2.5725.06397%47.52065.385 38%
Heildarfarþegahreyfingar11.018250.0732170%1.802.9941.937.395 7%
– Brottfarir5.356109.1891939%766.586821.291 7%
– Komur5.098101.4541890%763.625821.969 8%
– Skiptifarþegar (Skiptifarþegar eru taldir tvisvar)56439.4306891%272.783294.135 8%

Taflan á pdf

1 Gisting greidd í gegnum vefsíður á borð við Airbnb og óskráðar gistinætur ekki meðtaldar í samtölum yfir 12 mánaða tímabil.
2 Aðrar tegundir skráðra gististaða eru tjaldsvæði, farfuglaheimili, orlofshús, skálar í óbyggðum, íbúðagisting, svefnpokagististaðir og heimagististaðir.
3 Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (erlendis): Þjónusta sem veitt er í sambandi við ferðalög erlendis, þ.e. er undanþegin virðisaukaskatti skv. 12. grein laga um virðisaukaskatt (nr. 50/1988). Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (á Íslandi): Þjónusta sem veitt er í sambandi við ferðalög á Íslandi, þ.e. er ekki undanþegin virðisaukaskatti skv. 12. grein laga um virðisaukaskatt (nr. 50/1988).
4 Skv. gögnum frá Samgöngustofu. Fjöldi er tekin fyrsta virka dag hvers mánaðar.
5 Skv. talningu frá Vegagerðinni í gegnum 14 lykilteljara á hringveginum. Mánaðartölur sýna meðalfjölda talninga á dag í hverjum mánuði. Árstímabil sýnir heildartalningar yfir árið.
6 Skv. gögnum frá Ferðamálastofu.
7 Skv. gögnum frá ISAVIA, farþegahreyfingar telja brottfarir, komur og skiptifarþega sem eru tvítaldir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.