FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 20. FEBRÚAR 2020

Gistinætur á öllum tegundum gististaða voru um 523 þúsund í desember sem þýðir fækkun um 4% miðað við desember 2018. Gistinætur á hótelum voru tæplega 305 þúsund, eða um 58% af heildinni, og fjölgaði um 1% frá fyrra ári.

Framboð gistirýmis á hótelum hefur aukist mikið að undanförnu og í desember voru 9% fleiri herbergi í boði en í sama mánuði ári fyrr. Samhliða aukningu á framboði hefur nýting herbergja dregist saman, var 50,6% í desember síðastliðnum samanborið við 53,3% í desember 2018.

Farþegum til landsins í gegnum Keflavíkurflugvöll fækkaði um 21 þúsund (11%) í janúar, úr 179 þúsund í 158 þúsund, borið saman við sama mánuð árið áður. Þar af fækkaði farþegum með erlent ríkisfang um 13%, eða sem nemur um 18 þúsund farþegum. Íslenskum farþegum fækkaði um 6%, úr tæplega 41 þúsund í 38 þúsund farþega.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um gistinætur auk þess sem birtar eru uppfærðar tölur um bílaleigubíla frá Samgöngustofu, talningu farþega til landsins samkvæmt talningu Ferðamálastofu auk talna um farþega- og flughreyfingar frá ISAVIA.

Skammtímahagvísar ferðaþjónustu Desember  Janúar - desember 
Gistinætur20182019 %2017-20182018-2019%
Gistinætur alls547.174522.949-4%10.897.78610.495.959-4%
Hótel & gistiheimili356.128352.682-1%5.861.0915.785.059-1%
Gisting greidd gegnum vefsíður á borð við Airbnb79.00064.000-19%1.816.0001.620.000-11%
Óskráðar gistinætur (bíla- og innigisting)19.00019.0000%532.900455.000-15%
Aðrar tegundir skráðra gististaða193.04687.267-6%2.687.7952.635.900-2%
  Desember  Janúar - desember 
Framboð og nýting hótelherbergja20182019 %2017-20182018-2019 %
Gistinætur302.422304.7221%4.472.8704.519.0231%
Framboð hótelherbergja9.97310.8569%120.103128.9527%
Nýting53,3%50,6%-2,768,0%64,5%-3,5
  3. ársfjórðungur  4. ársfjórðungur - 3. ársfjórðungs
Þjónustujöfnuður (milljónir króna)20182019 %2017-20182018-2019 %
Tekjur af erlendum ferðamönnum194.412169.678-13%511.966484.702-5%
- Flug69.42649.297-29%182.138147.230-19%
- Neysla / Ferðalög124.985120.381-4%329.828337.4722%
  September - október  Nóvember - október 
Velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum220182019 %2017-20182018-2019 %
Velta alls (milljónir króna)115.336106.279-8%683.940621.931-9%
- Farþegaflutningar milli landa með flugi45.65441.135-10%293.996229.955-22%
- Rekstur gististaða18.64017.469-6%100.450100.2120%
- Veitingasala og -þjónusta17.31216.682-4%99.31699.9111%
- Bílaleigur8.9017.501-16%51.47549.105-5%
- Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (erlendis)3.4303.257-5%16.46016.4580%
- Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (á Íslandi)16.58515.860-4%93.43798.8116%
- Farþegaflutningar á landi3.8453.443-11%23.42622.183-5%
- Farþegaflutningar á sjó, vötnum og ám970931-4%5.3845.291-2%
  Október  Meðalfjöldi launþega nóvember - október
Launþegar320182019 %2017-20182018-2019 %
Launþegar alls28.90026.300-9%28.94127.525-5%
- Farþegaflutningar með flugi5.6004.300-23%5.2004.700-10%
- Rekstur gististaða6.9006.800-1%7.0006.900-1%
- Veitingasala og -þjónusta10.6009.600-9%10.80010.200-6%
- Ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur3.8003.600-5%3.8003.8000%
- Aðrar atvinnugreinar tengdar ferðaþjónustu2.8002.600-9%2.8002.600-7%
  Febrúar  Meðalfjöldi mars - febrúar
Bílaleigubílar420192020 %20192020 %
Bílaleigubílar alls24.53722.979-6%25.34524.491-3%
Bílaleigubílar í umferð21.54420.112-7%23.46222.735-3%
Bílaleigubílar úr umferð2.9932.867-4%1.8831.757-7%
  Janúar  Febrúar - Janúar 
Umferð á hringveginum520192020 %2018-20192019-2020 %
Suðurland10.0448.962-11%180.403176.436-2%
Vesturland9.3587.778-17%165.555171.7394%
Norðurland4.4673.761-16%103.62497.395-6%
Austurland1.1101.071-4%27.80124.191-13%
  Janúar  Febrúar - janúar 
Talning farþega úr landi20192020 %2018-20192019-2020 %
Farþegar í gegnum Keflavíkurflugvöll5179.640158.986-11%2.977.0222.576.882-13%
- Erlent ríkisfang139.055120.918-13%2.307.4111.969.438-15%
- Íslenskt ríkisfang40.58538.068-6%669.611607.444-9%
  Janúar  Febrúar - janúar 
Umferð í gegnum Keflavíkurflugvöll20192020 %2018-20192019-2020 %
Heildarfjöldi flughreyfinga (komur/brottfarir)6.0114.206-30%97.15984.206-13%
Heildarfarþegahreyfingar7535.210375.723-30%9.770.2667.088.333-27%
- Brottfarir182.344159.248-13%2.963.0522.589.047-13%
- Komur171.539152.514-11%2.945.3322.588.612-12%
- Skiptifarþegar (Skiptifarþegar eru taldir tvisvar)181.32763.961-65%3.859.0101.903.673-51%

Taflan á pdf

1 Aðrar tegundir skráðra gististaða eru tjaldsvæði, farfuglaheimili, orlofshús, skálar í óbyggðum, íbúðagisting, svefnpokagististaðir og heimagististaðir
2 Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (erlendis): Þjónusta sem veitt er í sambandi við ferðalög erlendis, þ.e. er undanþegin virðisaukaskatti skv. 12. grein laga um virðisaukaskatt (nr. 50/1988). Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (á Íslandi): Þjónusta sem veitt er í sambandi við ferðalög á Íslandi, þ.e. er ekki undanþegin virðisaukaskatti skv. 12. grein laga um virðisaukaskatt (nr. 50/1988).
3 Tölur námundaðar að næsta hundraði
4 Skv. gögnum frá Samgöngustofu
5 Skv. talningu frá Vegagerðinni í gegnum 14 lykilteljara á hringveginum. Mánaðartölur sýna meðalfjölda talninga á dag í hverjum mánuði. Árstímabil sýnir heildartalningar yfir árið
6 Skv. talningu frá Ferðamálastofu
7 Farþegahreyfingar telja brottfarir, komur og skiptifarþega sem eru tvítaldir.

Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónustu
Þjónustujöfnuður
Tekjur af erlendum ferðamönnum

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.