FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 16. FEBRÚAR 2023

Fjöldi starfandi í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi voru 28.661 í desember 2022 sem er 20% aukning samanborið við desember 2021. Árið 2022 störfuðu að jafnaði á mánuði um 28.700 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við 20.800 á árinu 2021.

Gistinætur á hótelum í desember 2022 voru 316.281 samanborið við 202.617 í desember árið á undan. Gistinætur erlendra gesta voru 252.410 samanborið við 155.506 í desember 2021 sem er aukning um 62%. Gistinætur Íslendinga voru 63.871 og fjölgaði um 36% frá fyrra ári.

Í janúar voru 162.554 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 82.864 í janúar 2022. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 121.053 samanborið við 67.656 í janúar í fyrra.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um gistinætur, fjölda starfandi skv. skrám, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.











Tafla á pdf

Talnaefni
Gistinætur
Hagvísar í ferðaþjónustu

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.