FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 20. JANÚAR 2022

Velta í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi var 91,6 milljarðar króna í september til október 2021 samkvæmt virðisaukaskattskýrslum sem er næstum því þreföld velta miðað við sama tímabil árið 2020 þegar hún var 31,6 milljarðar króna.

Áætlaðar gistinætur á hótelum í desember eru rúmlega 198 þúsund sem er rúmlega áttföld aukning borið saman við desember 2020 þegar gistinætur á hótelum voru 21.277. Gistinætur Íslendinga eru áætlaðar 41.400 í desember, eða 137% fleiri en í desember 2020, og gistinætur erlendra gesta eru áætlaðar 157.000 samanborið við 3.777 í desember 2020.

Í desember voru 97.568 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 11.646 í desember 2020. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 64.305 samanborið við 8.135 í desember 2020.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um gistinætur, veltu skv. virðisaukaskattskýrslum, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.





















Taflan á pdf

Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónsutu
Farþegar

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.