FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 18. JÚLÍ 2024

Fjöldi starfandi í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi voru 29.612 í maí 2024 sem er svipaður fjöldi og var í maí 2023. Á tólf mánaða tímabili frá júní 2023 til maí 2024 störfuðu að jafnaði um 29.382 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við 27.558 fyrir sama tímabil frá árinu áður.

Velta samkvæmt virðisaukaskattskýrslum í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi nam 129,5 milljörðum króna í mars til apríl 2024 sem er um það bil 7% aukning samanborið við sama tímabil 2023. Breyting á 12 mánaða tímabili frá maí 2023 til apríl 2024 er 14% aukning miðað við sama tímabil árinu áður.

Gistinætur á hótelum í maí 2024 voru 385.759 samanborið við 415.050 í maí 2023. Gistinætur erlendra gesta voru 304.848 í maí eða 9% færri en á sama tíma árið áður. Gistinætur Íslendinga voru 80.911, 2% fleiri en í maí 2023. Frekari upplýsingar um gistinætur er að finna á vef Hagstofunnar undir flokknum Ferðaþjónusta.

Í júní voru 277.672 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 288.593 í júní 2023. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 212.391 (-9%) samanborið við 233.912 í júní 2023.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum, gistinætur, fjölda starfandi skv. skrám, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.











Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.