FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 16. JÚNÍ 2020

Samkvæmt tilraunatölfræði gistinátta er áætlað að gistinætur á hótelum í maí hafi dregist saman um 86% og fækkað úr 315 þúsund í 44 þúsund samanborið við maí í fyrra. Í apríl fækkaði skráðum gistinóttum um 95%, úr 438 þúsund í tæplega 21 þúsund, samanborið við apríl í fyrra. Þar af drógust gistinætur á hótelum saman um 97%, úr 272 þúsund í 9 þúsund. Nýting hótelherbergja lækkaði um 46 prósentustig, úr 49% í apríl í fyrra niður í 4% síðastliðinn apríl. Framboð hótelherbergja dróst einnig saman um 45% og fækkaði um 5 þúsund herbergi á sama tímabili, úr rúmlega 10 þúsund niður í rúmlega 5 þúsund herbergi.

Brottfararfarþegum fækkaðo um 99% í maí samanborið við sama mánuð í fyrra, úr 183 þúsund í tæplega 2 þúsund. Séu síðustu 12 mánuðir bornir saman við sama tímabil árið áður hefur farþegum fækkað úr rúmlega 2,9 milljónum í tæplega 2,1 milljónir, eða um 28%.

Tekjur af erlendum ferðamönnum í fyrsta ársfjórðungi þessa árs voru tæpir 67 milljarðar og drógust saman um 26 milljarða, eða um 28%, samanborið við sama ársfjórðung á síðasta ári þegar þær voru 93 milljarðar. Þar af drógust tekjur af flugi saman um tæplega 7 milljarða, eða um 25%, og tekjur af neyslu ferðamanna um 20 milljarða, eða um 29%. Áhrifa Covid-19 á ferðaþjónustu fór að gæta verulega í síðari hluta síðasta mánaðar fyrsta ársfjórðungs. Tekjur af erlendum ferðamönnum hafa dregist saman um 14%, úr 518 milljörðum í tæpa 444 milljarða, séu síðustu fjórir ársfjórðungar bornir saman við sama tímabil árið áður.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um gistinætur og tekjur af erlendum ferðamönnum. Auk þess eru birtar uppfærðar tölur um bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferðatölur frá Vegagerðinni, talningu farþega til landsins samkvæmt talningu Ferðamálastofu og tölur um farþega- og flughreyfingar frá ISAVIA.

Skammtímahagvísar ferðaþjónustu Apríl  Maí - apríl 
Gistinætur20192020 %2018-20192019-2020%
Gistinætur alls (fyrir utan óskráðar gistinætur)438.67720.838-95%8.501.2917.700.772-9%
Hótel & gistiheimili335.67713.502-96%5.793.4345.238.071-10%
Gisting greidd gegnum vefsíður á borð við Airbnb8.... .... 
Óskráðar gistinætur (bíla- og innigisting)8.... .... 
Aðrar tegundir skráðra gististaða1103.0007.336-93%2.707.8572.462.701-9%
  Apríl  Maí - apríl 
Framboð og nýting hótelherbergja20192020 %2018-20192019-2020 %
Gistinætur272.5909.198-97%4.444.3864.064.970-9%
Framboð hótelherbergja10.4325.778-45%122.601126.2073%
Nýting49%4%-4666%60%-6
  Maí 
Tilraunatölfræði gistinátta 2019 (raun)   2020 (áætlað) %
Gistinætur á hótelum 315000  44000-86%
  1. ársfjórðungur  2. ársfjórðungur - 1. ársfjórðungs
Þjónustujöfnuður (milljónir króna)20192020 %2018-20192019-2020 %
Tekjur af erlendum ferðamönnum92.88066.692-28%518.128443.678-14%
- Flug26.77219.951-25%176.325132.368-25%
- Neysla / Ferðalög66.10846.741-29%341.803311.311-9%
  Janúar - febrúar  Mars - febrúar 
Velta samkvæmt virðisaukaskattskýrslum2 (m. kró20192020 %2018-20192019-2020 %
Velta alls79.90571.994-10%676.031608.010-10%
- Farþegaflutningar með flugi30.58126.589-13%279.947224.227-20%
- Rekstur gististaða11.03410.848-2%101.80298.590-3%
- Veitingasala og -þjónusta13.75513.587-1%100.29299.8560%
- Bílaleigur5.8034.822-17%51.09147.097-8%
- Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (erlendis)1.9322.17913%16.82916.7800%
- Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (á Íslandi)12.98710.810-17%97.27695.095-2%
- Farþegaflutningar á landi3.4892.925-16%23.36221.213-9%
- Farþegaflutningar á sjó, vötnum og ám323233-28%5.4305.152-5%
  Febrúar  Meðalfjöldi launþega mars - febrúar
Launþegar320192020 %2018-20192019-2020 %
Launþegar alls25.90023.500-9%29.00026.800-8%
- Farþegaflutningar með flugi4.8003.600-25%5.4004.200-21%
- Rekstur gististaða5.9005.800-3%7.0006.900-2%
- Veitingasala og -þjónusta9.8009.200-7%10.70010.000-6%
- Ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur3.6003.200-9%3.9003.800-3%
- Aðrar atvinnugreinar tengdar ferðaþjónustu2.5002.400-6%2.8002.600-7%
  Júní  Meðalfjöldi júlí - júní 
Bílaleigubílar420192020 %2018-20192019-2020 %
Bílaleigubílar alls25.43720.776-18%25.41823.631-7%
Bílaleigubílar í umferð24.37413.143-46%23.58520.729-12%
Bílaleigubílar úr umferð1.0637.633618%1.8332.90258%
  Maí  Júní - Maí 
Umferð á hringveginum520192020 %2018-20192019-2020 %
Suðurland15.48612.661-18%180.409163.400-9%
Vesturland15.11213.255-12%169.309159.360-6%
Norðurland8.5736.364-26%104.26893.064-11%
Austurland2.2631.362-40%27.64324.601-11%
  Maí  Júní - Maí 
Talning farþega úr landi20192020 %2018-20192019-2020 %
Farþegar í gegnum Keflavíkurflugvöll6183.2781.864-99,0%2.886.0282.075.543-28,1%
- Erlent ríkisfang126.3091.035-99,2%2.227.2771.617.053-27,4%
- Íslenskt ríkisfang56.969829-98,5%658.751514.629-21,9%
  Maí  Júní - Maí 
Umferð í gegnum Keflavíkurflugvöll20192020 %2018-20192019-2020 %
Heildarfjöldi flughreyfinga7.6445.510-27,9%92.42173.179-20,8%
Heildarfarþegahreyfingar7580.7014.064-99,3%9.218.5015.557.701-39,7%
- Brottfarir182.3511.795-99,0%2.878.3912.086.221-27,5%
- Komur195.6661.954-99,0%2.862.1962.069.107-27,7%
- Skiptifarþegar (Skiptifarþegar eru taldir tvisvar)202.684313-99,8%3.474.3811.396.030-59,8%

Taflan á pdf

1 Aðrar tegundir skráðra gististaða eru tjaldsvæði, farfuglaheimili, orlofshús, skálar í óbyggðum, íbúðagisting, svefnpokagististaðir og heimagististaðir.
2 Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (erlendis): Þjónusta sem veitt er í sambandi við ferðalög erlendis, þ.e. er undanþegin virðisaukaskatti skv. 12. grein laga um virðisaukaskatt (nr. 50/1988). Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (á Íslandi): Þjónusta sem veitt er í sambandi við ferðalög á Íslandi, þ.e. er ekki undanþegin virðisaukaskatti skv. 12. grein laga um virðisaukaskatt (nr. 50/1988).
3 Tölur námundaðar að næsta hundraði.
4 Skv. gögnum frá Samgöngustofu.
5 Skv. talningu frá Vegagerðinni í gegnum 14 lykilteljara á hringveginum. Mánaðartölur sýna meðalfjölda talninga á dag í hverjum mánuði. Árstímabil sýnir heildartalningar yfir árið.
6 Skv. talningu frá Ferðamálastofu.
7 Farþegahreyfingar telja brottfarir, komur og skiptifarþega sem eru tvítaldir.
8 Tölur ekki reiknaðar fyrir apríl vegna ófullnægjandi gagna.

Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónustu
Tilraunatölfræði um gistinætur
Þjónustujöfnuður
Tekjur af erlendum ferðamönnum

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1260 , netfang fyrirtaekjatolfraedi@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.