FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 16. JÚNÍ 2022

Velta í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi var rúmlega 87,2 milljarðar króna í mars til apríl 2022 samkvæmt virðisaukaskattskýrslum sem er ríflega tvöfalt meiri velta en á sama tímabili í fyrra þegar hún var rúmlega 32,8 milljarðar króna.

Fjöldi starfandi samkvæmt skrám í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi voru 24.271 í mars 2022 sem er 61% aukning samanborið við mars 2021. Á tólf mánaða tímabili frá apríl 2021 til mars 2022 störfuðu að jafnaði um 22.803 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við rúmlega 17 þúsund fyrir sama tímabil árið áður.

Áætlaðar gistinætur á hótelum í maí voru 255 þúsund samanborið við tæplega 103 þúsund í maí 2021. Gistinætur Íslendinga eru áætlaðar 54.000 í maí, eða 17% færri en í maí 2021 og gistinætur erlendra gesta eru áætlaðar 201.000 en voru um 38 þúsund í maí í fyrra.

Í maí voru 177.014 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 18.774 í maí 2021. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 112.032 samanborið við 14.395 í maí í fyrra.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um gistinætur, veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum, fjölda starfandi skv. Skrám, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.

















Tafla á pdf

Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónsutu
Farþegar

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.