FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 20. JÚNÍ 2024

Tekjur af erlendum ferðamönnum á fyrsta ársfjórðungi 2024 námu ríflega 98 milljörðum króna samanborið við 95,5 milljarða á fyrsta ársfjórðungi 2023. Á 12 mánaða tímabili frá apríl 2023 til mars 2024 voru tekjur af erlendum ferðamönnum rúmlega 600 milljarðar króna samanborið við rúmlega 497 milljarða fyrir sama tímabil árinu áður.

Fjöldi starfandi í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi voru 27.734 í apríl 2024 sem er 1% aukning samanborið við apríl 2023. Á tólf mánaða tímabili frá maí 2023 til apríl 2024 störfuðu að jafnaði um 29.371 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við 27.237 fyrir sama tímabil frá árinu áður.

Gistinætur á hótelum í apríl 2024 voru 330.737 samanborið við 366.216 í apríl 2023. Gistinætur erlendra gesta voru 251.059 í apríl eða 14% færri en á sama tíma árið áður. Gistinætur Íslendinga voru 79.678, 6% fleiri en í apríl 2023. Frekari upplýsingar um gistinætur er að finna á vef Hagstofunnar undir flokknum Ferðaþjónusta.

Í maí voru 210.872 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 219.827 í maí 2023. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 154.689 samanborið við 158.312 í maí 2023.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um þjónustuviðskipti við útlönd, gistinætur, fjölda starfandi skv. skrám, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.









Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónustu
Farþegar um Keflavíkurflugvöll
Meðal dagleg umferð á stofnvegum eftir mánuðum

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.