FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 16. MAÍ 2024

Fjöldi starfandi í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi voru 27.293 í mars 2024 sem er 2% aukning samanborið við mars 2023. Á tólf mánaða tímabili frá apríl 2023 til mars 2024 störfuðu að jafnaði um 29.337 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við 26.919 fyrir sama tímabil frá árinu áður.

Velta samkvæmt viðrðisaukaskattskýrslum í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi nam tæpum 109 milljörðum króna í janúar til febrúar 2024 sem er um það bil 10% aukning samanborið við sama tímabil 2023.

Gistinætur á hótelum í mars 2024 voru 428.197 samanborið við 423.554 í mars 2023. Gistinætur erlendra gesta voru 343.061 í mars eða 1% færri en á sama tíma árið áður. Gistinætur Íslendinga voru 85.136, 10% fleiri en í mars 2023. Frekari upplýsingar um gistinætur er að finna á vef Hagstofunnar undir flokknum ferðaþjónusta.

Í apríl voru 182.756 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 198.333 í apríl 2023. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 137.208 samanborið við 142.180 í apríl 2023.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum, gistinætur, fjölda starfandi skv. skrám, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.








Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónustu
Farþegar um Keflavíkurflugvöll
Meðal dagleg umferð á stofnvegum eftir mánuðum

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.