FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 17. MARS 2022

Velta í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi var tæplega 78,1 milljarður króna í nóvember til desember 2021 samkvæmt virðisaukaskattskýrslum sem er næstum því 150% meiri velta en á sama tímabili í fyrra þegar hún var rúmlega 31,6 milljarðar króna.

Fjöldi starfandi samkvæmt skrám í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi voru 22.033 í janúar 2022 sem er 57% aukning samanborið við janúar 2021. Á tólf mánaða tímabili frá febrúar 2021 til janúar 2022 störfuðu að jafnaði um 21.397 í einkennandi greinum ferðaþjónustu í samanburði við rúmlega 20 þúsund fyrir sama tímabil árið áður.

Áætlaðar gistinætur á hótelum í febrúar eru 295 þúsund sem er 604% aukning borið saman við febrúar 2021 þegar gistinætur á hótelum voru 41.907.

Gistinætur Íslendinga eru áætlaðar 80.200 í febrúar, eða 116% fleiri en í febrúar 2021, og gistinætur erlendra gesta eru áætlaðar 214.800 samanborið við 4.825 á síðasta ári.

Í febrúar voru 103.817 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 5.339 í febrúar 2021. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 75.831 samanborið við 2.997 í janúar í fyrra.

















Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um gistinætur, veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum, fjölda starfandi skv. skrám, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.

Tafla á pdf

Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónsutu
Farþegar

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.