FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 21. MARS 2024

Tekjur af erlendum ferðamönnum á fjórða ársfjórðungi 2023 námu tæplega 110 milljörðum króna samanborið við 98 milljarða á fjórða ársfjórðungi 2022. Árið 2023 voru tekjur af erlendum ferðamönnum 597,7 milljarða króna samanborið við 454,5 milljarða árinu áður.

Fjöldi starfandi í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi voru 28.638 í janúar 2024 sem er 4% aukning samanborið við janúar 2023. Á tólf mánaða tímabili frá febrúar 2023 til janúar 2024 störfuðu að jafnaði um 32.211 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við 29.128 fyrir sama tímabil frá árinu áður.

Velta samkvæmt virðisaukaskattskýrslum í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi nam 121,5 milljörðum króna árið 2023 sem er um það bil 13% aukning samanborið árið 2022.

Gistinætur á hótelum í janúar 2024 voru 282.570 samanborið við 312.439 í janúar 2023. Gistinætur erlendra gesta voru 235.103 í janúar eða 8% færri en á sama tíma árið áður. Gistinætur Íslendinga voru 47.467, 18% færri en í janúar 2023.

Í febrúar voru 193.262 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 176.036 í febrúar 2023. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 156.360 samanborið við 137.077 í febrúar 2023.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum, gistinætur, þjónustuviðskipti við útlönd, fjölda starfandi skv. skrám, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.














Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónustu
Farþegar um Keflavíkurflugvöll
Meðal dagleg umferð á stofnvegum eftir mánuðum

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.