Tekjur af erlendum ferðamönnum á fjórða ársfjórðungi 2024 námu tæplega 124 milljörðum króna samanborið við 114,1 milljarð á fjórða ársfjórðungi 2023. Árið 2024 námu tekjur af erlendum ferðamönnum 621,4 milljörðum króna samanborið við 603,5 milljarða árið 2023.
Fjöldi starfandi í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi var 27.967 í janúar 2025 sem er 2% fækkun samanborið við janúar 2024. Á tólf mánaða tímabili frá febrúar 2024 til janúar 2025 störfuðu að jafnaði um 31.456 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við 31.534 fyrir sama tímabil frá árinu áður.
Velta samkvæmt virðisaukaskattskýrslum í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi nam 136,9 milljörðum króna árið 2024 sem er um það bil 7% aukning samanborið við árið 2023.
Gistinætur á hótelum í janúar 2025 voru 400.852 samanborið við 389.762 í janúar 2024. Frekari upplýsingar um gistinætur er að finna á vef Hagstofunnar undir flokknum Ferðaþjónusta.
Í febrúar voru 188.945 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 193.262 í febrúar 2024. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 146.936, samanborið við 155.710 í febrúar 2024, sem er fækkun farþega um 6% á milli ára.
Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum, gistinætur, þjónustuviðskipti við útlönd, fjölda starfandi skv. skrám, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.
Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónustu
Farþegar um Keflavíkurflugvöll
Meðal dagleg umferð á stofnvegum eftir mánuðum