FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 17. NÓVEMBER 2022

Fjöldi starfandi í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi voru 31.552 í september 2022 sem er 23% aukning samanborið við september 2021. Á tólf mánaða tímabili frá október 2021 til september 2022 störfuðu að jafnaði um 27.287 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við 18.445 fyrir sama tímabil árið áður.

Gistinætur á hótelum í september voru rúmlega 494 þúsund samanborið við rúmlega 364 þúsund í september 2021. Gistinætur Íslendinga voru 93.212 í september, eða 1% færri en í september 2021, og gistinætur erlendra gesta voru 400.862 en voru 269.647 í september í fyrra eða 49% fleiri en árinu áður.

Í október voru 230.529 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 142.704 í október 2021. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 158.929 samanborið við 103.237 í október í fyrra.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um gistinætur, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni, fjölda starfandi samkvæmt skrám og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.














Tafla á pdf

Talnaefni
Gistinætur
Hagvísar í ferðaþjónustu

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.