FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 26. OKTÓBER 2022

Velta fyrir tímabilið júlí til ágúst 2022 í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi var rúmlega 196 milljarðar króna samkvæmt virðisaukaskattskýrslum sem er um það bil 78% meiri velta en á sama tímabili í fyrra þegar hún var rúmlega 110 milljarðar króna.

Gistinætur á hótelum í ágúst voru rúmlega 597 þúsund samanborið við rúmlega 439 þúsund í ágúst 2021. Gistinætur Íslendinga voru 105.459 í ágúst, eða 12% færri en í ágúst 2021, og gistinætur erlendra gesta voru 492.335 en voru 319.548 í ágúst í fyrra eða 54% fleiri en árinu áður.

Fjöldi starfandi samkvæmt skrám í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi var 32.795 í ágúst 2022 sem er 27% aukning samanborið við ágúst 2021. Á tólf mánaða tímabili frá september 2021 til ágúst 2022 störfuðu að jafnaði um 26.748 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við 17.882 fyrir sama tímabil árið áður.

Í september voru 237.270 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 137.180 í september 2021. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 176.988 samanborið við 108.276 í september í fyrra.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum, gistinætur, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni, fjölda starfandi samkvæmt skrám og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA. Hagstofan gefur ekki lengur út áætlun út frá fyrstu skilum fyrir gistinætur á hótelum.























Tafla á pdf

Talnaefni
Gistinætur
Hagvísar í ferðaþjónustu

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.