FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 17. OKTÓBER 2024

Fjöldi starfandi í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi var 34.467 í ágúst 2024 sem er 2% færri en voru í ágúst 2023 þegar fjöldinn var 35.254. Á tólf mánaða tímabili frá september 2023 til ágúst 2024 störfuðu að jafnaði um 31.520 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við 30.749 fyrir sama tímabil frá árinu áður.

Gistinætur á hótelum í ágúst 2024 voru 608.748 samanborið við 595.106 í ágúst á síðasta ári. Gistinætur erlendra gesta voru 486.175 í ágúst eða 3% færri en á sama tíma árið áður. Gistinætur Íslendinga voru 122.573, 30% fleiri en í ágúst 2023. Frekari upplýsingar um gistinætur er að finna á vef Hagstofunnar undir flokknum Ferðaþjónusta.

Í september voru 274.810 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 268.355 í september 2023. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 223.025 samanborið við 218.235 í september 2023 sem er fjölgun farþega um 2% á milli ára.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um gistinætur , fjölda starfandi skv. skrám, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.










Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónustu
Farþegar um Keflavíkurflugvöll
Meðal dagleg umferð á stofnvegum eftir mánuðum

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1000 , netfang gistiskyrslur@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.