FRÉTT FERÐAÞJÓNUSTA 19. SEPTEMBER 2024

Tekjur af erlendum ferðamönnum á öðrum ársfjórðungi 2024 námu tæplega 154 milljörðum króna samanborið við 160 milljarða á öðrum ársfjórðungi 2023. Á 12 mánaða tímabili frá júlí 2023 til júní 2024 voru tekjur af erlendum ferðamönnum rúmlega 607 milljarðar króna samanborið við tæplega 543 milljarða fyrir sama tímabil árinu áður.

Fjöldi starfandi í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi voru 31.777 í júlí 2024 sem er 2% færri en voru í júlí 2023 þegar fjöldinn var 32.366. Á tólf mánaða tímabili frá ágúst 2023 til júlí 2024 störfuðu að jafnaði um 29.304 í einkennandi greinum ferðaþjónustu samanborið við 28.113 fyrir sama tímabil frá árinu áður.

Velta samkvæmt virðisaukaskattskýrslum í einkennandi greinum ferðaþjónustu á Íslandi nam rúmlega 189 milljörðum króna í maí til júní sem er um það bil 3,6% aukning samanborið við sama tímabil 2023.

Gistinætur á hótelum í júlí 2024 voru 562.892 samanborið við 594.649 í júlí 2023. Gistinætur erlendra gesta voru 449.094 í júlí eða 8% færri en á sama tíma árið áður. Gistinætur Íslendinga voru 113.798, 9% fleiri en í júlí 2023. Frekari upplýsingar um gistinætur er að finna á vef Hagstofunnar undir flokknum Ferðaþjónusta.

Í ágúst voru 333.802 brottfarir farþega frá Keflavíkurflugvelli í samanburði við 326.782 í ágúst 2023. Brottfarir farþega með erlent ríkisfang voru 281.450 samanborið við 280.721 í ágúst 2023 sem er svipaður fjöldi farþega.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um um veltu samkvæmt virðisaukaskattskýrslum, gistinætur, þjónustuviðskipti við útlönd, fjölda starfandi skv. skrám, skráningar bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferð á hringveginum frá Vegagerðinni og fjölda farþega frá Ferðamálastofu út frá þjóðernum auk talna um farþegaflutninga og flughreyfingar frá ISAVIA.














Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónustu
Farþegar um Keflavíkurflugvöll
Meðal dagleg umferð á stofnvegum eftir mánuðum

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.