Velta í farþegaflutningum með flugi var 29% lægri í maí-júní 2019 en á sama tímabili 2018. Á þessu tímabili hættu tvö flugfélög starfsemi, Primera Air í október 2018 og WOW air í mars 2019. Þrátt fyrir mikinn samdrátt í flugi var velta í öðrum einkennandi greinum ferðaþjónustu nánast óbreytt milli ára, en lækkunin var einungis 0,2% frá maí-júní 2018 til sama tímabils 2019.

Launþegum í ferðaþjónustutengdum greinum fækkaði um 9% í júlí síðastliðnum samanborið við sama mánuð síðasta árs. Starfsmönnum fækkaði um 2.900 á þessu tímabili og fækkaði starfsmönnum í öllum flokkum tengdum ferðaþjónustu. Launþegum í farþegaflutningum með flugi fækkaði mest, eða um 19% og nam fækkunin 1.100 starfsmönnum á milli ára.

Gistinætur í júlí voru samtals 1.634 þúsund sem er 2% lækkun frá sama mánuði síðasta árs þegar þær voru 1.674 þúsund. Gisting greidd í gegnum vefsíður, á borð við Airbnb, dróst saman um 5% á sama tíma og fækkaði gistinóttum um 13 þúsund á milli ára. Bíla- og innigisting dróst einnig saman um 21% á milli ára. Á sama tíma fjölgaði gistinóttum á hótelum og gistiheimilum um 2% á milli ára og framboð hótelherbergja jókst um 3%. Nýtingarhlutfall hótelherbergja lækkaði örlítið á sama tímabili, úr 83% niður í 81%.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um gistinætur, ferðamenn til landsins í gegnum Keflavíkurflugvöll, virðisaukaskattskylda veltu og fjölda launþega í einkennandi greinum ferðaþjónustu. Auk þess eru birtar uppfærðar tölur um bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferðatölur frá Vegagerðinni og talningu farþega til landsins samkvæmt talningu Ferðamálastofu auk talna um farþega- og flughreyfingar frá ISAVIA.

Skammtímahagvísar ferðaþjónustu Júlí    Ágúst - júlí   
Gistinætur20182019  %2017-20182018-2019 %
Gistinætur alls1.674.6841.634.927 --2%10.713.69110.678.668 -0%
Hótel & gistiheimili705.354716.806 +2%5.670.9605.790.330 +2%
Gisting greidd gegnum vefsíður (t.d. Airbnb)255.000242.000 --5%1.826.0001.758.000 --4%
Óskráðar gistinætur (bíla- og innigisting)97.00077.000 --21%546.900490.000 --10%
Aðrar tegundir skráðra gististaða1617.330599.121 --3%2.669.8312.640.338 --1%
  Júlí    Ágúst - júlí   
Framboð og nýting hótelherbergja20182019   %2017-20182018-2019   %
Gistinætur486.790492.358 +1%4.350.4624.400.254 +1%
Framboð hótelherbergja10.43610.794 +3%115.996123.308 +6%
Nýting83%81% --269%66% --3
  1. ársfjórðungur    2. ársfjórðungur - 1. ársfjórðungs 
Þjónustujöfnuður (milljónir króna)20182019   %2017-20182018-2019  %
Tekjur af erlendum ferðamönnum94.23093.166 --1%506.277518.472 +2%
- Flug32.53826.807 --18%180.843176.433 --2%
- Neysla / Ferðalög61.69266.360 +8%325.764342.039 +5%
  Maí - júní    Júlí - júní  
Virðisaukaskattskyld velta220182019   %2017-20182018-2019  %
Velta alls (milljónir króna)128.451111.242 --13%665.607643.512 --3%
- Rekstur gististaða17.74217.768 +0%95.75498.144 +2%
- Farþegaflutningar með flugi58.40541.314 --29%288.016251.606 --13%
- Veitingasala- og þjónusta17.38517.358 -0%97.93199.190 +1%
- Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (erlendis)3.2962.942 --11%15.75716.502 +5%
- Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (á Íslandi)17.09317.435 +2%89.51198.772 +10%
- Bílaleigur9.5989.794 +2%50.19051.064 +2%
- Farþegaflutningar á landi3.7293.430 --8%22.95022.881 -0%
- Farþegaflutningar á sjó, vötnum og ám1.2041.201 -0%5.4995.353 --3%
  Júlí    Meðalfjöldi launþega ágúst - júlí 
Launþegar320182019   %2017-20182018-2019   %
Launþegar alls31.90029.000 --9%28.73327.917 --3%
- Farþegaflutningar með flugi5.9004.800 --19%5.0254.983 --1%
- Rekstur gististaða8.2007.800 --5%6.8006.717 --1%
- Veitingasala og -þjónusta10.7009.800 --8%10.79210.275 --5%
- Ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur4.5004.400 --2%3.8003.892 +2%
- Aðrar atvinnugreinar tengdar ferðaþjónustu3.1002.600 --16%2.8502.700 --5%
  September    Meðalfjöldi október - september 
Bílaleigubílar420182019   %2017-20182018-2019   %
Bílaleigubílar alls26.79925.296 --6%24.92325.051 +1%
Bílaleigubílar í umferð26.25924.760 --6%22.87523.217 +1%
Bílaleigubílar úr umferð540536 --1%2.0481.834 --10%
  Ágúst    September - ágúst   
Umferð á hringveginum520182019   %2017-20182018-2019   %
Suðurland20.20620.079 --1%176.721180.499 +2%
Vesturland19.81619.877 +0%162.113172.503 +6%
Norðurland15.45214.507 --6%102.761103.533 +1%
Austurland4.0964.003 --2%27.13727.187 +0%
  Ágúst    September - ágúst   
Talning farþega úr landi20182019   %2017-20182018-2019  %
Farþegar í gegnum Keflavíkurflugvöll6347.475300.366 --14%2.921.9802.732.145 --6%
- Erlent ríkisfang291.344251.887 --14%2.263.0162.101.526 --7%
- Þar af áætlaðir ferðamenn7260.149230.246 --11%2.024.5391.889.953 --7%
- Íslenskt ríkisfang56.13148.479 --14%658.964638.769 --3%
  Ágúst    September - ágúst   
Umferð í gegnum Keflavíkurflugvöll20182019   %2017-20182018-2019  %
Heildarfjöldi flughreyfinga (komur/brottfarir)9.5078.763 --8%99.14989.954 --9%
Heildarfarþegahreyfingar81.189.250840.137 --29%9.429.8168.573.282 --9%

Tafla á pdf

1 Aðrar tegundir skráðra gististaða eru tjaldsvæði, farfuglaheimili, orlofshús, skálar í óbyggðum, íbúðagisting, svefnpokagististaðir og heimagististaðir
2 Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (erlendis): Þjónusta sem veitt er í sambandi við ferðalög erlendis, þ.e. er undanþegin virðisaukaskatti skv. 12. grein laga um virðisaukaskatt (nr. 50/1988). Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (á Íslandi): Þjónusta sem veitt er í sambandi við ferðalög á Íslandi, þ.e. er ekki undanþegin virðisaukaskatti skv. 12. grein laga um virðisaukaskatt (nr. 50/1988).
3 Tölur námundaðar að næsta hundraði
4 Skv. gögnum frá Samgöngustofu
5 Skv. talningu frá Vegagerðinni í gegnum 14 lykilteljara á hringveginum. Mánaðartölur sýna meðalfjölda talninga á dag í hverjum mánuði. Árstímabil sýnir heildartalningar yfir árið
6 Skv. talningu frá Ferðamálastofu
7 Áætlaður fjöldi ferðamanna sem gista a.m.k eina nótt
8 Farþegahreyfingar telja brottfarir, komur og skiptifarþega sem eru tvítaldir

Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónustu
Þjónustujöfnuður
Tekjur af erlendum ferðamönnum
Farþegar og ferðamenn til landsins