FRÉTT FJÁRMÁL HINS OPINBERA 15. SEPTEMBER 2026

Afkoma hins opinbera var neikvæð um 130,8 milljarða króna árið 2025 eða sem nemur 2,6% af vergri landsframleiðslu ársins (VLF). Til samanburðar var afkoman neikvæð um 187,2 milljarða króna árið 2024 en á því ári höfðu viðbrögð við náttúruhamförum töluverð áhrif á útgjaldaaukningu ársins.

Tekjur hins opinbera námu 43,0% af VLF
Tekjur hins opinbera námu 2.125,0 milljörðum króna árið 2025 eða sem nemur 43,0% af VLF. Til samanburðar mældust tekjur hins opinbera 1.970,0 milljarðar árið 2024 eða 43,1% af landsframleiðslu. Á verðlagi hvers árs jukust tekjur hins opinbera um 154,8 milljarða króna frá fyrra ári eða sem nemur 7,9%.

Heildartekjur ríkissjóðs jukust um 7,6% á milli ára og námu alls 1.519,6 milljörðum króna. Á sama tíma jukust tekjur sveitarfélaga um 9,1% og námu alls 676,5 milljörðum króna. Almannatryggingar eru fjármagnaðar með tilfærslum frá ríkissjóði.

Skattar á tekjur og hagnað er stærsti tekjuliður hins opinbera og skilaði hann 43,1% af heildartekjum hins opinbera á árinu 2025. Alls námu tekjur hins opinbera af sköttum á tekjur og hagnað 915,5 milljörðum króna og jukust þær um 7,3% frá fyrra ári. Tekjur hins opinbera af sköttum á vöru og þjónustu jukust um 8,2% og námu 585,5 milljörðum króna eða sem nemur 27,6% af heildartekjum hins opinbera. Í heildina jukust skatttekjur hins opinbera um 7,5% á árinu 2025.

Uppgjör hins opinbera í meðferð Hagstofunnar er unnið samkvæmt þjóðhagsreikningakerfi Evrópusambandsins og er meðferð á sölu eigna og tekjur af hlutdeildarfélögum og samrekstri frábrugðin uppgjöri Ríkisreiknings og sveitarfélaga. Í uppgjöri Hagstofunnar er hagnaður af sölu eigna, hlutdeild af tekjum og virðisbreyting eigna færð um efnahagsreikning. Eingöngu eru tekjufærðar tekjur af fyrirtækjum í eigu hins opinbera í formi arðgreiðslna.

Útgjöld hins opinbera námu 45,7% af VLF
Útgjöld hins opinbera námu 2.255,9 milljörðum króna árið 2025 eða sem nemur um 45,7% af VLF. Til samanburðar voru útgjöld hins opinbera 2.157,5 milljarðar árið 2024 eða 47,1% af VLF. Útgjöld ríkissjóðs jukust um 3,2% á milli ára, útgjöld sveitarfélaga um 8,0% og útgjöld almannatrygginga um 12,1%.

Hrein útgjöld hins opinbera, þegar tekjur vegna sölu á vöru og þjónustu hafa verið dregnar frá, námu 2.127,4 milljörðum króna árið 2025. Meirihluti útgjalda hins opinbera rennur til samneyslu eða sem nemur 60,4% af hreinum gjöldum. Undir samneyslu falla launaútgjöld, afskriftir og kaup á vörum og þjónustu að frádreginni sölu á vöru og þjónustu. Samneysluútgjöld hins opinbera námu 1.284,2 milljörðum króna á árinu 2025 sem er aukning um 8,2% á milli ára á verðlagi hvers árs. Verðbreyting samneyslu nam 7,4% og magnbreyting samneyslu 0,7%.

Félagslegar tilfærslur til heimila námu 16,9% af hreinum útgjöldum hins opinbera á árinu 2025 eða 359,7 milljörðum króna og jukust þær um 10,2% á verðlagi hvers árs. Framleiðslustyrkir, fjárframlög og aðrar tilfærslur námu 8,7% af hreinum útgjöldum hins opinbera. Þessi liður dróst saman um 28,3% frá fyrra ári en þau úrræði og útgjöld sem féllu til á árinu 2024 vegna náttúruhamfara falla hér undir.

Fjárfesting hins opinbera á verðlagi hvers árs jókst um 11,1% á milli ára og nam 206,5 milljörðum króna árið 2025. Þegar tekið hefur verið tillit til afskrifta var hrein fjárfesting hins opinbera 69,2 milljarðar króna eða sem nemur 3,3% af hreinum útgjöldum hins opinbera.

Vaxtagjöld námu 10,8% af hreinum útgjöldum hins opinbera eða 230,2 milljörðum króna árið 2025. Vaxtagjöld hins opinbera hækkuðu um 8,5% á milli ára á verðlagi hvers árs. Vert er að hafa í huga að afmörkun hins opinbera í þjóðhagsreikningum og í talnaefni um fjármál hins opinbera miðast við evrópska þjóðhagsreikningastaðalinn (ESA2010). Með hinu opinbera teljast meðal annars lánasjóðir ríkissjóðs sem hafa veruleg áhrif á vaxtatekjur og -gjöld þess.

Heildarskuldir hins opinbera námu 88,3% af VLF í lok árs 2025
Hrein peningaleg eign hins opinbera var neikvæð um 1.889,9 milljarða króna í lok árs 2025 eða sem nemur 38,2% af VLF ársins. Til samanburðar var hrein peningaleg eign hins opinbera neikvæð um 34,1% af VLF árið 2024.

Peningalegar eignir hins opinbera námu 2.470,8 milljörðum króna í lok árs 2025 eða sem nemur 50,0% af VLF. Heildarskuldir hins opinbera námu 4.360,7 milljörðum króna í lok ársins 2025 eða 88,3% af VLF. Jukust skuldir hins opinbera um 6,1% á milli ára sem er heldur meiri aukning en bráðabirgðatölur gáfu til kynna. Hér vegur þyngst 17,4% aukning í lífeyrisskuldbindingum.

Heildarskuldir ríkissjóðs námu 3.708,1 milljarði króna í loks árs 2025 eða 75,0% af VLF og skuldir sveitarfélaganna 658,4 milljörðum eða sem nemur 13,3% af VLF.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.