FRÉTT FJÁRMÁL HINS OPINBERA 15. JÚNÍ 2007

Út eru komin Hagtíðindi í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um fjármál hins opinbera á 1. ársfjórðungi 2007. Í þeim fjórðungi nam tekjuafgangur hins opinbera 22,2 milljörðum króna sem er tölvert betri afkoma en á 1. ársfjórðungi 2006 er hún mældist 16,6 milljarðar króna. Sem hlutfall af landsframleiðslu mældist tekjuafkoman 1,7% og sem hlutfall af tekjum hins opinbera 15,1%. Þessi hagstæða afkoma skýrist fyrst og fremst af góðri tekjuafkomu ríkissjóðs en tekjuafkoma sveitarfélaganna var einnig viðunandi og mældist 9,4% af tekjum sveitarfélaganna á þessum ársfjórðungi samkvæmt áætlun.

Fjármál hins opinbera á 1. ársfjórðungi 2007 - útgáfa

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.