Áætlað er að tekjuafkoma hins opinbera hafi verið neikvæð um 58,1 milljarð króna á 1. ársfjórðungi 2021, eða sem nemur 8,2% af vergri landsframleiðslu ársfjórðungsins.
Í heild er áætlað að tekjur hins opinbera hafi aukist um 13,6% frá 1. fjórðungi 2020, þar af nemur aukning skatttekna 12,7%. Fjármálafyrirtæki í eigu ríkisins hafa samþykkt að greiða arðgreiðslur að fjárhæð 7,9 milljörðum króna á árinu 2021 og eru þær tekjufærðar á 1. ársfjórðungi. Engar arðgreiðslur frá fjármálafyrirtækjum í eigu ríkisins voru greiddar á síðasta ári.
Áætlað er að heildarútgjöld hafi aukist um 14,5% á 1. ársfjórðungi 2021 frá sama tímabili fyrra árs. Launakostnaður vegur þar þyngst en hann er áætlaður 32,6% af heildarútgjöldum hins opinbera. Áætlað er að félagslegar tilfærslur til heimila hafi aukist um 26,7% frá 1. fjórðungi 2020 og tilfærsluútgjöld um 48,4%.
Áhrif af Covid-19 mikil á 1. ársfjórðungi
Áhrif Covid-19 á fjármál hins opinbera eru enn mikil og ber uppgjör hins opinbera á 1. ársfjórðungi 2021 þess merki. Áhrifin koma meðal annars fram í útgjöldum Atvinnuleysistryggingasjóðs vegna aukins atvinnuleysis, vegna greiðslu launa í sóttkví, sérstaks íþrótta- og tómstundastyrks til barna og sérstakra aðgerða í vinnumarkaðsmálum. Þá hafa útgjöld hins opinbera vegna tilfærslna til fyrirtækja einnig aukist, meðal annars vegna veitingu tekjufalls- og viðspyrnustyrkja sem námu um 9 milljörðum á 1. ársfjórðungi.
Fjárhagur hins opinbera á 1. ársfjórðungi | |||
2020 | 2021 | Breyting | |
Verðlag hvers árs, milljarðar króna | 1. ársfj. | 1. ársfj. | % |
Heildartekjur | 278,6 | 316,4 | 13,6 |
Heildarútgjöld | 327,2 | 374,5 | 14,5 |
Fjárfesting | 17,6 | 21,5 | 22,2 |
Tekjujöfnuður | -48,6 | -58,1 | • |
Tekjujöfnuður % af tekjum | -17,5 | -18,4 | • |
Tekjujöfnuður % af VLF ársfjórðungs | -7,0 | -8,2 | • |
Bráðabirgðatölur fyrir 2020 og 2021.
Talnaefni um rekstrarútgjöld til heilbrigðismála hefur einnig verið uppfært.