FRÉTT FJÁRMÁL HINS OPINBERA 30. SEPTEMBER 2005

Hagstofan birtir nú samandregið yfirlit yfir fjármál ríkis og sveitarfélaga á 2. ársfjórðungi 2005. Þessi yfirlit ná aftur til 1. ársfjórðungs 2004. Þau eru á rekstrargrunni og eru birt í lok næsta ársfjórðungs eftir að viðkomandi fjórðungi lýkur. Yfirlitin eru meðal annars gerð vegna þeirra alþjóðlegu skuldbindinga sem íslensk stjórnvöld hafa tekið á sig í tengslum við EES-samninginn, en munu þó enn frekar koma innlendum stjórnvöldum að gagni við mat á hagþróun innan ársins. Þá nýtist þetta nýja efni Hagstofunni við gerð ársfjórðungslegra þjóðhagsreikninga.

Efnið er tvískipt. Annars vegar er efni frá Fjársýslu ríkisins um tekjur og gjöld ríkissjóðs á 2. fjórðungi ársins og hins vegar er áætlað heildaryfirlit yfir tekjur og gjöld allra sveitarfélaga í landinu á sama tíma. Tölurnar frá sveitarfélögunum byggja á úrtaki 8 sveitarfélaga með 56,8% íbúafjöldans og hefur það úrtak verið fært upp til heildar. Enn sem komið er hefur ekki reynst unnt að birta mikla sundurliðun á efninu og hefur birtingin takmarkast við rekstrartekjur, rekstrargjöld og tekjujöfnuð auk þess sem fjárfesting er sýnd sérstaklega.

Bráðabirgðatölur fyrir 2. ársfjórðung 2005 benda til að  heildartekjur ríkissjóðs hafi orðið 87,3 milljarðar króna á rekstrargrunni og tekjujöfnuður jákvæður um 4,4 milljarða króna. Tekjur hafa aukist um 30,1% frá sama fjórðungi fyrra árs en gjöld um 16,4% og afkoman því batnað verulega.

Fjárhagur ríkissjóðs á 2. ársfjórðungi 2004-2005    
  2004 2005 Breyting
  ma.kr. ma.kr. %
       
1. Rekstrartekjur 67,1 87,3 30,1
2. Rekstrargjöld og fjárfesting, án afskrifta 71,2 82,9 16,4
      2.1 þar af fjárfesting 3,8 5,9 55,3
3. Tekjujöfnuður (3.=1.-2.)  -4,1 4,4  
4. Tekjujöfnuður sem % af tekjum -6,1 5,0  
5. Tekjujöfnuður sem % af  landsframleiðslu ársins -0,5 0,4  

Tekjur sveitarfélaganna á 2. ársfjórðungi eru áætlaðar 25,4 milljarðar króna, rekstrargjöld eru áætluð 24,4 milljarðar og sýnist rekstrarniðurstaðan því hafa orðið jákvæð um 1,0 milljarð. Þetta er hins vegar verri niðurstaðan en í fyrra enda eru tekjurnar taldar hafa aukist um nær 19% en rekstrargjöldin um nær 26%. Fjárfesting sveitarfélaganna á 2. ársfjórðungi er talin hafa orðið mun meiri en afskriftir þeirra og tekjujöfnuður því hafa orðið neikvæður um 1,9 milljarða samnborið við 1,2 milljarða á sama tíma í fyrra.

Fjárhagur sveitarfélaga á 2. ársfjórðungi 2004-2005    
  2004 2005 Breyting
  ma.kr. ma.kr. %
       
1. Rekstrartekjur 21,4 25,4 18,8
2. Rekstrargj. að meðt. afskriftum, án fjárfestinga 19,4 24,4 25,9
      2.1 þar af afskriftir 1,3 1,3 0,7
3. Rekstrarniðurstaða (3.=1.-2.)  2,0 1,0  
4. Rekstrarniðurstaða sem % af tekjum 9,3 4,0  
5. Fjárfesting 4,5 4,2  
6. Tekjujöfnuður (6.=3.+2.1-5.) -1,2 -1,9  
7. Tekjujöfnuður sem % af tekjum -5,6 -7,5  
8. Tekjujöfnuður sem % af landsframleiðslu ársins -0,1 -0,2  

Heildartekjur ríkissjóðs og sveitarfélaga, þ.e. hins opinbera í heild eru áætlaðar 112,7 milljarðar króna á 2. ársfjórðungi og tekjujöfnuður 2,5 milljarðar króna eða 2,2% af tekjum þeirra. Sem hlutfall af landsframleiðslu ársins er afgangurinn áætlaður  0,3% hjá hinu opinbera í heild. Í sama fjórðungi fyrra árs var tekjujöfnuðurinn neikvæður um 5,3 milljarða eða 0,6% af landsframleiðslu ársins. 

Fjárhagur ríkissjóðs og sveitarfélaga á 2. ársfjórðungi 2004-2005
  2004 2005 Breyting
  ma.kr. ma.kr. %
       
1. Rekstrartekjur 88,5 112,7 27,4
2. Rekstrargjöld og fjárfesting, án afskrifta 93,8 110,2 17,5
      2.1 þar af fjárfesting 8,3 10,1 21,9
3. Tekjujöfnuður (3.=1.-2.)  -5,3 2,5  
4. Tekjujöfnuður sem % af tekjum -6,0 2,2  
5. Tekjujöfnuður sem % af  landsframleiðslu ársins -0,6 0,3  


Að síðustu eru svo birtar samtölur ríkis og sveitarfélaga fyrir 1. og 2. ársfjórðung 2004 og 2005.  Þar kemur fram að heildartekjur á fyrri árshelmingi 2005 hafa aukist um 23,3% og tekjujöfnuður batnað verulega. Hann er nú áætlaður 4,9% af tekjum en var á sama tíma í fyrra talinn neikvæður um nánast sama hlutfall eða 4,7%. Megin skýringin er batnandi hagur ríkissjóðs en tekjujöfnuður sveitarfélaganna hefur versnað lítið eitt.

Fjárhagur ríkissjóðs og sveitarfélaga á fyrri árshelmingi 2004-2005
  2004 2005 Breyting
  ma.kr. ma.kr. %
       
1. Rekstrartekjur 176,8 218,1 23,3
2. Rekstrargjöld og fjárfesting, án afskrifta 185,1 207,3 12,0
      2.1 þar af fjárfesting 15,0 15,6 4,2
3. Tekjujöfnuður (3.=1.-2.)  -8,3 10,8  
4. Tekjujöfnuður sem % af tekjum -4,7 4,9  
5. Tekjujöfnuður sem % af  landsframleiðslu ársins -0,9 1,1  



Í þessum tölum hefur verið leitast við að skrá bæði tekjur og gjöld á rekstrargrunni, ekki á greiðslugrunni eins og mánaðaryfirlit ríkissjóðs sýna. Rekstrargrunnur felur í sér að skuldbindingar eru bókfærðar þegar til þeirra er stofnað, óháð því hvenær greiðslur fara fram. Eins og áður segir eru þetta bráðabirgðatölur, bæði hjá ríki og sveitarfélögum. Sérstaklega eru tölur um fjárfestingu sveitarfélaganna óvissu háðar og er þar að hluta byggt á fjárhagsáætlunum sveitarfélaganna fyrir árið í heild. Í bókhaldi sveitarfélaga eru fjárfestingar í sumum tilvikum nettófærðar. Þetta á við um gatnaframkvæmdir þar sem innheimt gatnagerðargjöld eru dregin frá fjárfestingu. Hér hefur verið leitast við að brúttófæra þá fjárfestingu og tekjufæra á móti gatnagerðargjöldin í samræmi við þjóðhagsreikninga en þessi leiðrétting er talsverðri óvissu háð.

Það kann að orka tvímælis hvort tekjujöfnuðurinn sé eini rétti mælikvarðinn við mat á afkomu hins opinbera þótt hann skipi öndvegi í þjóðhagsreikningum. Hagstofan birtir því nú eins og í síðustu frétt um þetta efni einnig annan mælikvarða á afkomuna en það er rekstrarniðurstaða. Munurinn á rekstrarniðurstöðu og tekjujöfnuði er sá að rekstrarniðurstaða sýnir niðurstöðu rekstrarreiknings eftir að afskriftir hafa verið gjaldfærðar en tekjujöfnuður sýnir niðurstöðuna eftir að fjárfesting hefur verið dregin frá rekstrarniðurstöðu en aftur á móti eru afskriftir þá ekki gjaldfærðar. Munur þessara tveggja mælikvarða felst því í muninum á afskriftum og fjárfestingu. Ef fjárfestingin er hærri en afskriftir verður tekjujöfnuður lakari en rekstrarniðurstaðan sem þeim mun nemur. Ekki liggja fyrir tölur um afskriftir ríkissjóðs og því er ekki unnt að birta tölur um rekstrarniðurstöðu nema hjá sveitarfélögunum. Mat á afkomu ríkissjóðs og hins opinbera í heild takmarkast því við tekjujöfnuð líkt og verið hefur.

Talnaefni (sjá „Fjárhagur hins opinbera eftir ársfjórðungum 2004-2005“)

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.