FRÉTT FJÁRMÁL HINS OPINBERA 15. SEPTEMBER 2008

Út eru komin Hagtíðindi í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um fjármál hins opinbera á 2. ársfjórðungi 2008. Í þeim fjórðungi var tekjuafkoma hins opinbera neikvæð um 1,9 milljarða króna en það er verulega óhagstæðari afkoma en á 2. ársfjórðungi 2007 er hún var jákvæð um 11,8 milljarða króna. Sem hlutfall af landsframleiðslu var tekjuhallinn 0,1% og sem hlutfall af tekjum hins opinbera 1,2%. Fara þarf aftur til þriðja ársfjórðungs 2004 til að finna neikvæða afkomu í rekstri hins opinbera. Þessi óhagstæða afkoma skýrist af bæði neikvæðri tekjuafkomu ríkissjóðs og sveitarfélaga, en afkoma almannatrygginga var hins vegar jákvæð á umræddum ársfjórðungi.

Tekjur ríkissjóðs hækkuðu um 1,3% á öðrum ársfjórðungi 2008 frá sama ársfjórðungi 2007, en lækkuðu hins vegar um 4,6% frá 1. ársfjórðungi 2008 eða 5,4 milljarða króna og munar þar mestu um lækkun skatttekna af vöru og þjónustu. Á sama tíma hækkuðu útgjöldin um 13,8% milli ára og um 10,4% milli fyrsta og annars ársfjórðungs 2008. Munar þar miklu um aukna fjárfestingu ríkissjóðs og aukin fjárframlög til almannatrygginga.

Fjármál hins opinbera á 2. ársfjórðungi 2008 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.