Áætlað er að tekjuafkoma hins opinbera hafi verið neikvæð um 15,5 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi 2023, eða sem nemur 1,5% af vergri landsframleiðslu ársfjórðungsins. Til samanburðar nam hallinn á fyrsta ársfjórðungi 2022 4% af vergri landsframleiðslu ársfjórðungsins.
Í heild er áætlað að tekjur hins opinbera hafi aukist um 10,2% frá öðrum fjórðungi 2022. Tekjur af sköttum og tryggingagjaldi jukust um 10,4%.
Áætlað er að heildarútgjöld hafi aukist um 4,4% á öðrum ársfjórðungi 2023 frá sama tímabili fyrra árs. Áætlað er að útgjöld vegna launa hafi aukist um 8,2%, kaup á vöru og þjónustu um 9,6% og opinber fjárfesting um 1%.