FRÉTT FJÁRMÁL HINS OPINBERA 15. SEPTEMBER 2026

Áætlað er að tekjuafkoma hins opinbera hafi verið neikvæð um 48,3 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi 2026 eða sem nemur 3,8% af vergri landsframleiðslu ársfjórðungsins. Til samanburðar nam hallinn á öðrum ársfjórðungi 2025 3,0% af vergri landsframleiðslu þess ársfjórðungs.

Afkoma hins opinbera er áætluð út frá bráðabirgðatölum. Niðurstöður munu taka breytingum þegar uppgjör liggur fyrir.

Í heild er áætlað að tekjur hins opinbera hafi aukist um 4,3% frá öðrum ársfjórðungi 2025. Þar vega þyngst auknar tekjur vegna skatta á tekjur og hagnað sem áætlað er að hafi aukist um 6,2% ásamt auknum tekjum vegna skatta á vöru og þjónustu sem jukust um 5,3%.

Gert er ráð fyrir að heildarútgjöld hafi aukist um 6,1% á öðrum ársfjórðungi 2026 frá sama tímabili fyrra árs. Samneysluútgjöld hins opinbera halda áfram að aukast en áætlað er að launakostnaður hafi aukist um 7,2% á verðlagi ársins og útgjöld vegna kaupa á vöru og þjónustu um 8,5%. Aukning í félagslegum tilfærslum til heimila vegur þungt í útgjaldaaukningu hins opinbera en bráðabirgðagögn benda til þess að þær hafi aukist um 22,9%.

Vert er að hafa í huga að afmörkun hins opinbera í þjóðhagsreikningum og í talnaefni um fjármál hins opinbera miðast við evrópska þjóðhagsreikningastaðalinn (ESA2010). Með hinu opinbera teljast meðal annars lánasjóðir ríkissjóðs sem hafa veruleg áhrif á vaxtatekjur og gjöld þess. Í greinagerð sem gefin var út 30. nóvember 2020 og er aðgengileg á vef Hagstofunnar er fjallað sérstaklega um aðferðafræðilegan grundvöll geiraflokkunar og úrlausn álitamála er snúa að flokkun fyrirtækja og stofnana í eigu ríkisins.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 5281100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.