FRÉTT FJÁRMÁL HINS OPINBERA 14. DESEMBER 2007

Út eru komin Hagtíðindi í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um fjármál hins opinbera á 3. ársfjórðungi 2007. Í þeim fjórðungi nam tekjuafgangur hins opinbera 13 milljörðum króna samanborið við 17,3 milljarða króna á sama tíma 2006. Sem hlutfall af landsframleiðslu var tekjuafgangurinn 1,1% og sem hlutfall af tekjum hins opinbera 8,7%. Á fyrstu 9 mánuðum ársins mældist tekjuafkoma hins opinbera jákvæð um 41,9 milljarða króna, sem samsvarar 3,4% af landsframleiðslu, en á sama tíma 2006 var tekjuafkoman hins vegar jákvæð um 50,2 milljarða króna, eða 4,3% af landsframleiðslu.

Tekjuafkoma ríkissjóðs og almannatrygginga var jákvæð um 11,8 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi 2007 samanborið við 16,6 milljarða króna árið áður og um 38,3 milljarða króna á fyrstu 9 mánuðum ársins samanborið við 47,7 milljarðar króna árið 2006. Tekjuafkoma sveitarfélaganna var einnig jákvæð á 3. ársfjórðungi 2007 eða um 1,2 milljarða króna og því heldur hagstæðari en á sama tíma 2006. Fyrstu 9 mánuði 2007 mældist tekjuafgangur sveitarfélaganna 4,1 milljarður króna en það svarar til 3,1% tekna þeirra.

Fjármál hins opinbera á 3. ársfjórðungi 2007 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.