FRÉTT FJÁRMÁL HINS OPINBERA 10. DESEMBER 2012

Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um 8,4 milljarða króna á 3. ársfjórðungi 2012 sem er nokkru hagstæðari niðurstaða en á sama tíma 2011 er hún var neikvæð um 14,4 milljarða króna. Tekjuhallinn nam 1,9% af landsframleiðslu ársfjórðungsins og 4,5% af tekjum hins opinbera. Fyrstu níu mánuði ársins reyndist tekjuafkoma hins opinbera neikvæð um 29 milljarða króna eða 2,3% af landsframleiðslu þess tímabils, en til samanburðar var tekjuafkoman neikvæð um 46 milljarða króna á sama tíma 2011 eða 3,8% af landsframleiðslu.

Fjármál hins opinbera á 3. ársfjórðungi 2012 - Hagtíðindi

Talnaefni (sjá Fjárhagur hins opinbera eftir ársfjórðungum 2004-2012)

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.