Áætlað er að tekjuafkoma hins opinbera hafi verið neikvæð um 34,2 milljarða króna á 3. ársfjórðungi 2021 eða sem nemur 4,0% af vergri landsframleiðslu (VLF) ársfjórðungsins.
Í heild er áætlað að tekjur hins opinbera hafi aukist um 10,4% frá þriðja ársfjórðungi 2020. Tekjur af sköttum á tekjur og hagnað einstaklinga og lögaðila jukust um 7,3% á sama tíma.
Heildarútgjöld hins opinbera eru talin hafa aukist um 2,8% á þriðja ársfjórðungi 2021 frá sama tímabili fyrra árs. Launakostnaður vegur þar þyngst en hann nemur um 33,2% af heildarútgjöldum. Áætlað er að fjárfesting hins opinbera hafi aukist um 12,7% frá þriðja ársfjórðungi 2020 og að félagslegar tilfærslur til heimila hafi aukist um 3,2% á sama tímabili.
Fjárhagur hins opinbera á 3. ársfjórðungi | |||
2020 | 2021 | Breyting | |
Verðlag hvers árs, milljarðar króna | 3. ársfj. | 3. ársfj. | % |
Heildartekjur | 312,9 | 345,3 | 10,4 |
Heildarútgjöld | 369,1 | 379,5 | 2,8 |
Fjárfesting | 32,2 | 36,3 | 12,7 |
Tekjujöfnuður | -56,2 | -34,2 | • |
Tekjujöfnuður % af tekjum | -18,0 | -9,9 | • |
Tekjujöf. % af VLF ársfjórðungs | -7,5 | -4,0 | • |
Bráðabirgðatölur fyrir 2021 |
Bráðabirgðatölur fyrir 2021