FRÉTT FJÁRMÁL HINS OPINBERA 05. DESEMBER 2024

Áætlað er að tekjuafkoma hins opinbera hafi verið neikvæð um 37 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi 2024 eða sem nemur 3,1% af vergri landsframleiðslu ársfjórðungsins. Til samanburðar nam hallinn á þriðja ársfjórðungi 2023 0,5% af vergri landsframleiðslu þess ársfjórðungs.

Í heild er áætlað að tekjur hins opinbera hafi aukist um 5,2% samanborið við þriðja ársfjórðung 2023. Tekjur af sköttum og tryggingagjaldi jukust um 7,4% en eignatekjur drógust saman um 7,0%.

Áætlað er að heildarútgjöld hafi aukist um 11,8% á þriðja ársfjórðungi 2024 miðað við sama tímabil fyrra árs. Hér vegur þungt 17,8% aukning í útgjöldum vegna félagslegra tilfærsla til heimila. Einnig hafa útgjöld vegna þeirra úrræða sem ríkissjóður hefur gripið til vegna jarðhræringa og eldgosa við Grindavík töluverð áhrif á afkomu hins opinbera.

Vert er að hafa í huga að afmörkun hins opinbera í þjóðhagsreikningum og í talnaefni um fjármál hins opinbera miðast við evrópska þjóðhagsreikningastaðalinn (ESA2010). Með hinu opinbera teljast meðal annars lánasjóðir ríkissjóðs sem hafa veruleg áhrif á vaxtatekjur og -gjöld þess. Í greinargerð sem gefin var út 30. nóvember 2020 og aðgengileg er á vef Hagstofunnar er fjallað sérstaklega um aðferðafræðilegan grundvöll geiraflokkunar og úrlausn álitamála er snúa að flokkun fyrirtækja og stofnana í eigu ríkisins.

Afkoma hins opinbera er áætluð út frá bráðabirgðatölum. Niðurstöður munu taka breytingum þegar uppgjör liggur fyrir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang opinberfjarmal@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.