FRÉTT FJÁRMÁL HINS OPINBERA 08. MARS 2010

Út eru komin Hagtíðindi í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um fjármál hins opinbera á 4. ársfjórðungi 2009. Í þeim ársfjórðungi var hið opinbera rekið með 43,5 milljarða króna tekjuhalla samanborið við 14 milljarða króna tekjuhalla á sama tíma 2008 (án 192 milljarða skuldaryfirtöku ríkissjóðs). Þar af nam tekjuhalli ríkissjóðs og almannatrygginga 38,9 milljörðum króna og tekjuhalli sveitarfélaganna 4,6 milljörðum. Á sama tíma 2008 var tekjuhalli ríkissjóðs og almannatrygginga 11,3 milljarðar án skuldaryfirtöku og tekjuhalli sveitarfélaga 2,8 milljarðar króna. Hin óhagstæða þróun í fjármálum hins opinbera milli ársfjórðunganna skýrist fyrst og fremst af auknum útgjöldum vegna mikillar skuldsetningar og atvinnuleysis.

Heildartekjur hins opinbera eru áætlaðar um 169 milljarðar króna á 4. ársfjórðungi 2009 samanborið við tæplega 162 milljarða króna á sama tímabili 2008 og hækkuðu því um 4,1% milli ára, en hækkunin skýrist einkum af auknum tekjum af tryggingagjöldum og sölu- og eignatekjum. Skatttekjur lækkuðu hins vegar lítillega milli tímabilanna. Heildarútgjöld hins opinbera námu samkvæmt áætlun 212 milljörðum króna á 4. ársfjórðungi 2009 samanborið við 176 milljarða króna árið 2008 (án skuldaryfirtöku ríkissjóðs), og nam hækkunin 20,5% milli ára. Sú hækkun skýrist einkum af verulega auknum vaxtagreiðslum hins opinbera vegna skuldsetningar og auknum félagslegum tilfærslum til heimila eins og áður segir, en samneysluútgjöld hins opinbera lækkuðu hins vegar um 1 milljarð króna milli tímabilanna.


 

Hrein peningaleg eign ríkissjóðs, þ.e. peningalegar eignir umfram skuldir, var neikvæð um 511 milljarð króna í lok 4. ársfjórðungs 2009 samanborið við um 239 milljarða króna neikvæða eign á sama ársfjórðungi 2008. Heildarskuldir ríkissjóðs námu 1.566 milljörðum króna í lok þessa ársfjórðungs eða sem nam 102,7% af áætlaðri landsframleiðslu ársins. Til samanburðar nam skuld ríkissjóðs 1.199 milljörðum króna á 4. ársfjórðungi 2008 eða sem svarar 81,2% af landsframleiðslu.


Fjármál hins opinbera á 4. ársfjórðungi 2009 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.