Hagstofa Íslands hefur reiknað út meðalrekstrarkostnað á hvern nemanda í öllum grunnskólum sem reknir eru af sveitarfélögum, skv. 2. mgr. 56. gr. laga nr. 66/1995 um grunnskóla og 6. gr. reglugerðar um viðurkenningu grunnskóla og lágmarksframlög úr sveitarsjóði til slíkra skóla nr. 320 frá 26. mars 2007
Um útreikning þennan fer samkvæmt 2. mgr. 6. gr. ofangreindrar reglugerðar sem hér segir:
„Útreikningur Hagstofu Íslands skv. 1. mgr. skal liggja fyrir í september ár hvert. Útreikningur skal byggður á ársreikningum sveitarfélaga fyrir liðið ár, að teknu tilliti til verðlagsbreytinga til þess dags sem útreikningur er gerður. Verðlagsbreytingar skulu taka mið af almennum launahækkunum starfsmanna grunnskóla og breytingum á vísitölu neysluverðs að teknu tilliti til vægis hvors þáttar fyrir sig í rekstrarkostnaði grunnskólanna.“
Meðalrekstrarkostnaður á hvern nemanda á grunnskólum árið 2009 reyndist vera 1.198.757 krónur og vegin meðalverðbreyting rekstrarkostnaðar frá árinu 2009 til september 2010 var metin um 1,0%.
Niðurstöður útreikningsins eru því þær að áætlaður rekstrarkostnaður á hvern nemanda í grunnskólum, sem reknir eru af sveitarfélögum, sé 1.210.669 krónur í september 2010.