FRÉTT FYRIRTÆKI 24. JÚLÍ 2013

Í júnímánuði voru nýskráð 170 einkahlutafélög, til samanburðar við 185 í júní 2012. Nýskráningar voru flestar í heild- og smásöluverslun, viðgerðir á ökutækjum. Fyrstu 6 mánuði ársins var fjöldi nýskráninga 1.023, en það er 11% aukning frá sama tíma í fyrra þegar 922 fyrirtæki voru skráð.

Þá voru 70 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í júnímánuði, flest í heild- og smásöluverslun, viðgerðir á ökutækjum. Fyrstu 6 mánuði ársins var fjöldi gjaldþrota 531, en það er rúmlega 7% fækkun frá sama tímabili í fyrra þegar 572 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta.

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.