FRÉTT FYRIRTÆKI 26. MAÍ 2015

Hagstofa Íslands birtir nú í fyrsta skipti tölur um aldursdreifingu hluta- og einkahlutafélaga sem orðið hafa gjaldþrota frá árinu 1998. Af þeim gjaldþrotum sem orðið hafa frá árinu 1998 eru 49,6% þeirra 6 ára eða yngri og 34,3% eru 7-12 ára. Einungis 16% félaga voru 13 ára eða eldri þegar þau fóru í þrot.

Ef aldur hluta- og einkahlutafélaga sem hafa verið tekin til gjaldþrotaskipta á árinu 2014 er skoðaður, þá sést að 9,1% félaga eru 1-3 ára, 23,7% eru 4-6 ára og 30,6% eru 7-9 ára gömul. Þessi tafla yfir aldursdreifingu verður uppfærð árlega.

Gjaldþrot einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá maí 2014 til apríl 2015, hafa dregist saman um 20% samanborið við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 769 félög tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu. Gjaldþrotum í flokknum Fjármála- og vátryggingastarfsemi hefur fækkað mest, eða um 22% á síðustu 12 mánuðum.

Nýskráningum einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá maí 2014 til apríl 2015, hefur fjölgað um 8% samanborið við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 2.107 ný félög skráð á tímabilinu. Mest er fjölgun nýskráninga í flokknum Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi, 44% á síðustu 12 mánuðum.


Nýskráningar og gjaldþrot
  Apríl   Maí - Apríl  
  2015 2014 % 2014-2015 2013-2014 %
Nýskráningar ehf og hf.            
Alls 185 180 3 2.107 1.956 8
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   13 7 86 98 86 14
C Framleiðsla  10 7 43 83 82 1
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   20 14 43 248 184 35
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   22 23 -4 279 276 1
H Flutningar og geymsla   3 5 -40 44 43 2
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   13 11 18 140 118 19
J Upplýsingar og fjarskipti  17 19 -11 174 170 2
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   16 36 -56 312 312 0
L Fasteignaviðskipti   33 9 267 248 256 -3
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   21 21 0 212 147 44
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   6 16 -63 140 157 -11
             
Gjaldþrot            
Alls 66 83 -20 769 881 -13
A Landbúnaður, skógrækt og fiskveiðar   - 3 - 23 28 -18
C Framleiðsla  5 5 0 53 57 -7
F Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð   11 11 0 145 167 -13
G Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum   14 15 -7 140 166 -16
H Flutningar og geymsla   3 2 50 22 28 -21
I Rekstur gististaða og veitingarekstur   5 7 -29 64 61 5
J Upplýsingar og fjarskipti  1 4 -75 35 40 -13
K Fjármála- og vátryggingastarfsemi   3 8 -63 51 65 -22
L Fasteignaviðskipti   14 12 17 96 116 -17
M Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi   5 8 -38 68 66 3
N Leigustarfsemi og ýmis sérhæfð þjónusta   1 2 -50 33 32 3

Talnaefni

 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.