FRÉTT FYRIRTÆKI 26. JÚNÍ 2008

Rekstrarhagnaður 23.298 fyrirtækja sem voru í rekstri bæði árin 2005 og 2006 (paraður samanburður) nam 16,2% af tekjum árið 2006 og 14,4% árið 2005. Hagnaður af reglulegri starfsemi þessara fyrirtækja var 8,7% af tekjum árið 2006 og 14,7% árið 2005. Þetta kemur meðal annars fram í nýju hefti Hagtíðinda.

Þegar litið er á afkomu allra fyrirtækja í gagnasafninu, 28.324 fyrirtækja árið 2006 og  30.298 fyrirtækja árið 2005, er hún hlutfallslega mjög svipuð og afkoma þeirra sem voru í pöruðum samanburði. Árið 2006 nam rekstrarhagnaður þeirra 16,3% af tekjum en árið áður var hann 14,0%. Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 7,9% af tekjum árið 2006 og 14,0% af tekjum árið 2005.

Í yfirlitinu eru fyrirtæki í öllum atvinnurekstri að meðtöldum fyrirtækjarekstri hins opinbera, þ.m.t. fyrirtæki í eigu ríkis og sveitarfélaga sem rekin eru í hlutafélags- eða samlagsformi, svo og orku-, veitu- og fjölmiðlafyrirtæki, en önnur starfsemi hins opinbera er undanskilin. Starfsemi lífeyrissjóða er einnig undanskilin.

Ársreikningar fyrirtækja 2005-2006 - Hagtíðindi

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.