FRÉTT FYRIRTÆKI 11. SEPTEMBER 2019

Frá ágúst 2018 til júlí 2019, voru að jafnaði 18.489 launagreiðendur á Íslandi og hafði þeim fjölgað um 300 (1,7%) frá síðustu 12 mánuðum þar á undan. Á sama tímabili greiddu launagreiðendur að meðaltali um 194.500 einstaklingum laun sem er aukning um 1.800 (1,0%) samanborið við 12 mánaða tímabil ári fyrr. Í júlí 2019 voru um 135.100 launþegar í viðskiptahagkerfinu og hefur þeim fækkað um 5.200 ( 3,7%) samanborið við júlí 2018. Á sama tímabili hefur launþegum í heild fækkað um 400 (-0,2%).

Breyting á fjölda launþega milli ára - viðskiptahagkerfið Þessar tölur byggja á staðgreiðslugögnum og geta verið misvísandi þegar greiddar eru eingreiðslur sem einnig ná til fyrrverandi starfsmanna, t.d. orlofs- og desemberuppbót. Ef slíkar eingreiðslur koma alltaf í sama mánuði þá jafnast tölurnar út ef horft er á breytingar milli ára. Ef eingreiðslur koma óreglulega þá skekkist samanburður milli ára.

Eftir kjarasamninga í vor fengu nokkrir hópar orlofsuppbót greidda í apríl, en ekki í maí/júní eins og hefur verið undanfarin ár. Þetta veldur því að fækkun „launþega“ milli ára er vanmetin í apríl og ofmetin í maí.

Nokkrir hópar sem hafa lausa kjarasamninga fengu eingreiðslu í júlí. Hér er einkum um að ræða opinbera starfsmenn og eingreiðslan skýrir að hluta hvers vegna mun fleiri fá launagreiðslur í opinbera geiranum í júlí 2019 en í júlí 2018. Á tímabilinu frá júní 2018 til júní 2019 fjölgaði launþegum í fræðslustarfsemi og opinberri stjórnsýslu um 1.600 (3,3%) og launþegum í heilbrigðis- og umönnunarþjónustu um 200 (1,3%).

Fjöldi launagreiðenda og launþega
Launagreiðendur Launþegar í júlí
  júlí 2019 2018 2019 Breyting %
Allar atvinnugreinar 18.270 204.700 204.300 -400 -0,2
Viðskiptahagkerfið (ÍSAT nr. 03-82, 95-96) 14.451 140.300 135.100 -5.200 -3,7
Sjávarútvegur (ÍSAT nr. 031, 102) 637 8.500 8.000 -400 -5,3
Framleiðsla án fiskvinnslu (ÍSAT nr. 10-33 án 102) 1.013 18.200 17.800 -400 -2,1
Byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð (ÍSAT nr. 41-43) 2.819 14.500 14.500 100 0,4
Sala, viðgerðir og viðhald á vélknúnum ökutækjum og tengivögnum (ÍSAT nr. 45) 505 3.700 3.500 -200 -4,6
Heildverslun, að undanskildum vélknúnum ökutækjum (ÍSAT nr. 46) 978 9.400 9.500 0 0,5
Smásöluverslun, að undanskildum vélknúnum ökutækjum (ÍSAT nr. 47) 845 15.100 14.900 -200 -1,6
Fræðslustarfsemi og opinber stjórnsýsla (ÍSAT nr. 84-85) 567 47.300 51.900 4.600 9,8
Heilbrigðis- og umönnunarþjónusta (ÍSAT nr. 86-88) 1.141 17.500 18.500 1.000 5,9
Einkennandi greinar ferðaþjónustu (ÍSAT nr. 491, 4932, 4939, 501, 503, 511, 551-553, 561, 563, 771, 7721, 79) 2.008 31.900 29.000 -2.900 -9,2
Tækni- og hugverkaiðnaður (ÍSAT nr. 20, 254, 26-30, 325, 53, 58, 60-63, 72) 933 13.300 12.900 -300 -2,5

Endurskoðun hagtalna
Tölurnar sem hér um ræðir eru bráðabirgðatölur. Þar sem byggt er á staðgreiðslugögnum getur verið um vanmat að ræða þegar launagreiðendur skila ekki inn upplýsingum tímanlega. Meðal annarra skekkjuvalda má nefna orlofsgreiðslur til fyrrverandi starfsmanna. Þegar nýjar tölur eru birtar eru jafnframt birtar endurskoðaðar tölur fyrir fyrri tímabil. Nánari lýsingu á skekkjuvöldum, áhrifum þeirra og endurskoðun birtra talna má finna í lýsigögnum.

Áður birtar tölur hafa verið endurskoðaðar, þ.e. tekið tillit til nýrra upplýsinga um launagreiðslur og nýjustu upplýsinga um atvinnugreinaflokkun.

Heildarfjöldi launagreiðenda í mars 2019 telst nú vera 18.179 og heildarfjöldi launþega um 187.000. Launþegum fækkaði um 400 (-0,2%) frá mars 2018 til mars 2019.

Þegar tölur voru birtar 28. maí sl. töldust vera 18.034 launagreiðendur og um 186.800 launþegar í mars 2019. Fjöldi launþega var þá talinn hafa minnkað um 600 (-0.3%) frá mars 2018 til mars 2019.

Aðrar hagtölur um svipað efni
Hafa verður í huga að í tölum um launþega eru ekki upplýsingar um einyrkja sem eru með rekstur á eigin kennitölu og greiða sjálfum sér laun, en slíkt rekstrarform er algengt í byggingariðnaði, landbúnaði, hugverkaiðnaði og skapandi greinum svo dæmi séu tekin.

Hagstofa birtir heildarfjölda starfandi samkvæmt skráargögnum og eru þar taldir með þeir sem greiða sjálfum sér laun. Starfandi eru meðal annars flokkaðir eftir aldri, kyni og lögheimili.

Hagstofa Íslands gefur út rekstrar- og efnahagsyfirlit fyrirtækja. Yfirlitið byggist á skattframtölum fyrir tekjuárin 2002–2017 og gefur ítarlega mynd af stöðu einstakra atvinnugreina.

Hagstofa Íslands framkvæmir samfellda vinnumarkaðsrannsókn (VMR) allt árið um kring og birtir helstu niðurstöður (atvinnuþátttöku, fjölda starfandi, atvinnuleysi o.fl.) mánaðarlega og ítarlegri sundurliðun (s.s. starfshlutfall og vinnutíma eftir atvinnugreinum) árlega. Í VMR eru einnig upplýsingar um þá sem eru sjálfstætt starfandi og aðeins eru taldir með þeir sem eru skráðir í Þjóðskrá og með fasta búsetu á Íslandi. Því er eðlilegt að tölur í þessari frétt séu ekki nákvæmlega þær sömu og í VMR. Tölum um fjölda launagreiðenda og launþega er fyrst og fremst ætlað að sýna þróun til skamms tíma og sveiflur innan árs.

Talnaefni
Launþegar í einkennandi greinum ferðaþjónustu
Launþegar í öllum atvinnugreinum

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.